YFIRLIT YFIR PAXFOREX SEM FOREX MIÐLUNARFYRIRTÆKI
KYNNING
Samkvæmt rannsóknum okkar, er PAXFOREX forex miðlunarfyrirtæki í Sankti Vinsent á Grenadínum.
Gjaldeyrismiðlun er fyrirtæki sem veitir miðlurum aðgang að vettvangi sem gerir þeim kleift að kaupa og selja erlenda gjaldmiðla.
Einnig er hægt að vísa til Forex miðlana sem smásölu Forex miðlana eða miðlana í gjaldeyrisviðskiptum. Gjaldeyrismiðlarar í smásölu nota þessar miðlanir til að fá aðgang að gjaldeyrismarkaði sem er opinn allan sólarhringinn til að spá fyrir um gengi.
Forex þjónustur miðlana eru einnig veittar fyrir viðskiptavini stofnana og stórra fyrirtækja á borð við fjárfestingabanka.
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Einkunn
Reglustofnanir
Vettvangar
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Dulritun
Opinber síða
🥇
4.7/5
ASIC, FSA, CBI, BVI, FSCA, FRSA, CySEC, ISA, JFSA
MT4, MT5, Avatrade Social
USD 100
400:1
Já
5
4.9/5
CySEC, FSCA, FCA, FSA, DFSA, CMA, St. Vincent & the Grenadine
MT4, MT5, HFM App, HFM Copy Trading
USD 0
2000:1
Já
7
4.9/5
ASIC, BaFin, CMA, CySEC, DFSA, FCA, SCB
MT4, MT5, cTrader, Tradingview, Pepperstone Platform
USD 10
400:1
Já
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Opinber síða
SAGA OG HÖFUÐSTÖÐVAR PAXFOREX
PaxForex er vörumerki fyrirtækisins Laino Group Ltd, stofnað árið 2011, með höfuðstöðvar í Kingstown og skráð í St. Vinsent og Grenadínum sem fjárfestingafyrirtæki.
PaxForex fór samstarf með öðrum fyrirtækjum staðsettum í ýmsum lögsagnarumdæmum á borð við Total Capital Forex Promotions (Pty) Ltd, en starfar sjálft aðeins frá sínum höfuðstöðvum í St. Vinsent og Grenadínum.
Þetta þýðir að litið er á PaxForex sem miðlun undir engu eftirliti þar sem hún hefur engin leyfi eða heimildir frá heimþekktum fjármálayfirvöldum.
PaxForex var þó stofnað af atvinnumiðlurum og fjárfestum, og hefur nú þegar verið treyst í meira en áratug af sínum viðskiptavinum. PaxForex listar einnig Credit Suisee, Barclays, Deutsche Bank, Goldman Sachs, UBS og Merrill Lynch sem samstarfsaðila fyrir greiðslufjármagn.
PayForex samþykkir ekki kúnna frá Bandaríkjunum, Þýskalandi, Nýja Sjálandi, Japan og Kanada.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
Í heimi forex miðlunarfyrirtækja skiptir það miklu máli fyrir orðstír fyrirtækisins að vera heiðrað með verðlaunum frá virtum samtökum eða útgáfum.
Þó PaxForex sé mikils metið af sumum viðskiptavinum í persónulegum álitum á skoðanasíðum, eru engar upplýsingar tiltækar á heimasíðu PaxForex um hverskyns verðlaun sem þau hafa hlotið.
REIKNINGAR PAXFOREX
Forex reikningur er viðskiptareikningur sem miðlari á hjá fyrirtæki eins og PaxForex sem er fyrst og fremst stofnaður til að versla með gjaldmiðla.
Vanalega fer fjöldi og tegund reikninga sem miðlari getur opnað hjá miðlunarfyrirtæki eftir því í hvaða landi miðlunin vinnur, búsetulandi miðlara og reglugerðaryfirvöldum þess lögsagnarumdæmis sem miðlunin starfar í.
GERÐIR REIKNINGA OG EIGINLEIKAR
Hjá PaxForex eru eftirfarandi tegundir reikninga í boði: Sentreikningar, míníreikningar, hefðbundnir reikningar og VIP reikningar. Íslamskur reikningar og prufureikningar eru einnig í boði.
Sentreikningar
Lágmarksinnlagnarupphæð til að opna sentreikning er 10 $ en PaxForex mælir með allavega 100$. Lotustærðin er 1.000, veðköll eru 55% og útstopp eru 20%. Gjaldmiðill reiknings er aðeins USD og lágmarksverðbil er 2,4 pip,
Míníreikningar
Opnunarinnistæða fyrir þess tegund reikninga er 100 $ en mælt er með 500 $ af miðluninni. Lotustærð er 100.000 og lágmarksmagn lotu er 0,01. Veðköll eru 10% og útstopp er 5%.
Hefðbundinn reikningur
Lágmarksverðbil fyrir hefðbundinn reikning er 0,4 og lágmarksinnistæða í upphafi er 2.000 $ þó að PaxForex mæli með 5.000 $. Lágmarkslotustærð er 0,1. Allar miðlanlegar eignir á vettvangi miðlunarinnar er hægt að miðla með á þessari gerð reiknings.
VIP reikningar
Lágmarksinnlagnarupphæð til að opna sentreikning er 10.000 $ en PaxForex mælir með allavega 50.000 $. Lágmark miðlanlegs umfangs er 0,01 lota. Hann er með lægstu verðbil frá 0,4.
Reikningurinn er hannaður fyrir atvinnumiðlara sem miðla í miklu magni og til staðar er persónulegur sjóðsstjóri fyrir alla reikningseigendur.
Íslamskur reikningur
Skiptigjaldslaus reikningur er tiltækur eftir beiðni. Hann er til staðar sem míní, hefðbundinn eða VIP reikningur.
Prufureikningur
Þessir reikningar eru í boði með sýndarsjóðum og bjóða miðlurum upp á tækifæri til að æfa sig áður en þeir halda áfram.
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
PaxForex býður upp á ýmsar innlagnarleiðir sem innifela VISA, MasterCard, Bitcoin, Ether/Ethereum, FasaPay, staðbundnar bankamillifærslur, Neteller, PerfectMoney, Qiwi, Skrill og WebMoney.
Úttektir er hægt að framkvæma með MasterCard, Bitcoin, FasaPay, staðbundnum millifærslum, Neteller, PerfectMoney, Qiwi, Skrill og WebMoney.
PaxForex samþykkir hinsvegar aðeins innlagnir frá bankareikningum á sama nafni og er á viðskiptareikningnum og hverskyns innlögnum frá þriðju aðilum er hafnað. Grunngjaldmiðill eru USD EUR og GBP.
Úttektir eru framkvæmdar frá 09:00 til 18:00 alla virka daga, en ekki um helgar og á almennum frídögum. Lágmarksupphæð sem hægt er að taka út í hvert sinn er 10 $.
Innlagnir í gegnum Bitcoin, Ethereum, og PerfectMoney bera engin gjöld og aðeins eru greidd bankagjöld fyrir innlagnir gerðar með bankamillifærslu.
Innlagnir á kredit- og debetkort eru ókeypis yfir 300 $ en lægri upphæð en það bera kostnað á milli 3,75 og 8,5%, plús 0,50 $.
Úttektir með bankamillifærslu munu aðeins kosta gjöld í banka, úttektir með kredit/debetkortum kosta 5,5% og úttektir inn á rafveski kosta allt að 3,9%.
KOSTNAÐUR OG GJÖLD, ÞÓKNANIR OG VERÐBIL
Viðskiptakostnaður fer eftir mismunandi þáttum eins og þóknunum, verðbilum og mörkum.
Verðbil gjaldmiðlapars er mismunurinn á milli tilboðs og ásetts verðs. Pip stendur fyrir þá minnstu breytingu sem gengi getur færst til. Eitt pip er 0,01 fyrir gjaldmiðlapör með JPY sem bundinn gjaldmiðil og 0,0001 fyrir öll önnur pör.
Mörk er sú upphæð fés sem þarf að vera inni á þínum reikning til geta opnað stöðu. Mörk eru reiknuð miðað við núverandi verð á grunngjaldmiðlinum á móti USD, stærð (umfangi) stöðunnar og skuldsetningunni sem notuð fyrir þinn viðskiptareikning.
Þóknanir eru þau gjöld sem fjárfestingarmiðlun innheimtir af miðlara fyrir að framkvæma viðskipti fyrir hans hönd. Stig skuldbindinga eru mismunandi eftir miðlunum og fer einnig eftir eigninni sem miðlað er með og þeirri þjónustu sem miðlunin veitir.
Miðlanir sem sjá aðeins um framkvæmdina, það er þær miðlanir sem sjá ekki um hverskyns fjárfestingarráðgjöf og gefa miðlurum algjörlega frjálsar hendur um hvernig þeir versla á mörkuðum, hafa yfirleitt lægri þóknanir.
Þó miðlun með afleiðusamninga (CFD) sé form af afleiddum viðskiptum sem gerir miðlurum kleift að spá fyrir um hækkun eða lækkun verðs á hraðvirkum alþjóðlegum fjármálamörkuðum, þarf að greiða þóknun fyrir að miðla með bréfin.
CFD viðskipti á öðrum mörkuðum bera engar þóknanir en auka verðbil markaðsverðsins fyrir ákveðinn gerning.
Viðskiptagjöld hjá PaxForex eru innheimt gegnum verðbil í stað þóknana og samkeppnishæfra verðbila, sérstaklega á hefðbundnum og VIP reikningum, eru í boði. Skiptigjöld PaxForex eru einnig samkeppnishæf og gegnsæ.
Dýrasti úttektarmátinn eru rafmyntir, með 7% kostnað + 0.0006 BTC fyrir Bitcoin, og 7% fyrir Ethereum. PaxForex innheimtir ekki óvirknigjöld.
SKULDSETNING
Ferlið sem leyfir miðlara að hafa miklu meiri áhrif á markaði en sú upphæð sem hann eða hún lagði inn til að opna viðskipti, er kallað skuldsetning. Slíkar skuldsetningar auka mögulegan gróða miðlarans – en auka líka að sjálfsögðu hugsanlegt tap.
Upphæð skuldsetningar er sett fram sem hlutfall, til dæmis 50:1, 100:1, eða 500:1. Ef gert er ráð fyrir að miðlari eigi 1.000 $ inni á hans eða hennar viðskiptareikningi og er að miðla með miðastærðir 500.000 USD/JPY, mun sú skuldsetning jafnast á við 500:1.
Skuldsetning PaxForex er 1:500 fyrir allar gerðir reikninga
BÓNUSAR
Forex miðlanir hneigjast til að laða að nýja miðlara með boðum um aðlaðandi innlagnarbónusa. Þetta getur verið hentugt, en það er mikilvægt að koma auga á hvað almennilegur bónus er.
Slíkur bónus er leið til umbuna miðlurum fyrir að velja ákveðna miðlun, því að um leið og reikningur er opnaður, mun miðlarinn hafa sama kostnað og hver annar.
Bónusinn er aðeins verðlaun fyrir val miðlarans sem gefur sumt af þessum kostnaði aftur til baka til miðlarans, um leið og hann hefur sannað sig sem virkur miðlari.
Viðskiptavinir ættu að athuga að bónusar án innlagnar eru frábær leið fyrir þig til að byrja þín viðskipti, en þeir koma oft með fáránlegum skilyrðum svo jafnvel þó að þú hagnist, verður þú að miðla með mikið magn áður en þú getur gert einhverskonar úttekt.
Það sem meira er, síðan 1. ágúst 2018 hefur Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) sett upp vernd fyrir miðlara fyrir markaðssetningu, dreifingu og sölu á CFD til einstaklingsmiðlara.
Þetta hindrar miðlanir í að beint eða óbeint bjóða smásölukúnna greiðslu, peninga eða ópeningaleg fríðindi í tengslum við markaðssetningu, dreifingu eða sölu á CFD, annarri en hagnaði af hverskyns CFD sem boðið er upp á.
PaxForex verlaunar viðskiptavini með 100% innlagnarbónus allt að 1.200 $. Kerfið miðar að því að verðlauna viðskiptavini og styðja þá í að auka sinn viðskiptahöfuðstól.
Bónus er virkjaður þegar 1.200 $ innlögn eða meira er lögð inn á viðskiptareikninginn fyrir hverskyns viðskipti. Bónusinn er lagður inn eftir beiðni frá miðlarar og heildarbónus fyrir einn reikning er hámark 10.000 $.
Hámarksbónus á hvern miðlara er 30.000 $ og bónusinn er ekki hægt að taka út því að hann er eingöngu ætlaður fyrir viðskipti.
Þú gætir einnig haft áhuga á MEX Exchange Skoðun
VIÐSKIPTAVETTVANGAR, HUGBÚNAÐUR OG EIGINLEIKAR HANS
Forex miðlunarhugbúnaðurinn sem miðlunarfyrirtæki veitir sínum viðskiptavinum er kallaður vettvangur og er notaður til að framkvæma viðskipti þeirra.
Vettvangur getur verið fjölnota, sem þýðir að hann leyfir viðskiptavinum ekki aðeins að versla með forex, heldur einnig aðra eignaflokka á borð við CFD fyrir hlutabréf, hlutabréfavísitölur, verðmæta málma, og rafmyntir.
Ákvörðunin um hvaða vettvang ætti að velja mun fara eftir því hvað viðskiptavinurinn vill versla með, það mun því einnig vera eitt af því sem þarf að skoða þegar miðlun er valin.
PaxForex býður aðeins upp á MetaTrader 4 (MT4) vettvanginn, þó til niðurhals og fyrir fartæki. MT4 er þekktur og virtur í geiranum.
PaxForex veitir MT4 fyrir PC, fjölmiðstöðva fyrir PC og stýrikerfi fartækja. Fartækjaútgáfa MT4 er tiltæk fyrir android, iOS og windows stýrikerfi fartækja til að veita miðlurum tækifæri á að miðla hvenær sem er og hvar sem er.
MARKAÐIR, VÖRUR OG GERNINGAR
Flestar miðlanir bjóða upp á einhver af eftirfarandi markaðsgerningum fyrir viðskipti:
Gjaldeyrisviðskipti:
Forex miðlun, einnig þekkt sem FX miðlun, snýst um gjaldeyrisskiptamarkaðinn þar sem einstaklingar, fyrirtæki og fjármálastofnanir skiptast á gjaldmiðlum á fljótandi gengi.
Vörur:
Eins og með gjaldeyrisskiptamarkaði, bjóða vörumarkaðir upp á öðruvísi fjárfestingartækifæri fyrir miðlara. Fjárfesting í samningsbundnum seljanlegum vörum er áreiðanleg leið til að draga úr áhættu á tímum verðbólgu eða efnahagsóvissu.
Vísitölur:
Eignir eða hlutabréfavísitölur eru alvöru vísitölur hlutabréfamarkaðsins sem mæla verðgildi ákveðins hluta af hlutabréfamarkaði. Þær geta staðið fyrir mengi stærstu fyrirtækja eins lands eða staðið fyrir einn ákveðinn hlutabréfamarkað.
Verðmætir málmar:
Viðskipti með gull og aðra verðmætir málma fela í sér hrávörur sem eru samningsbundnar, seljanlegar vörur.
Orka:
Óstöðugleiki orkuverðs vegna ástands í stjórnmálum eða umhverfi, framboðs og eftirspurnar, öfga í veðurfari og hnattræns hagvaxtar er dæmigerður eiginleiki þessarar vöru, sem gerir hana að öðrum vinsælum valkosti til að versla með.
Rafmyntir:
Bitcoin (BTC) er rafmynt með mestu markaðsfjármögnuna og verðgildi síðan hún var stofnuð árið 2008. Hún ræður um 50% af öllu markaðsvirði rafmynta.
Litecoin (LTC) er svipuð Bitcoin en hefur öðruvísi kjör og sveigjanleika. Litecoin er önnur mjög vinsæl rafmynt og LTCUSD er afleggjari frá Bitcoin (BTCUSD), afrituð frá kóða Bitcoin og með smávægilegum breytingum, sett af stað sem nýtt verkefni.
Ripple (RPL) er vinsælt meðal stórra banka með Ripple netkerfinu og næstu kynslóðar greiðsluuppgjörskerfi í rauntíma. Það leyfir tafarlausar millifærslur sjóða yfir landamæri með mjög lágum tilkostnaði.
Ethereum (ETH) er næststærsta rafmyntin á eftir Bitcoin og leyfir hönnuðum að búa til snjallsamninga á vettvangi.
Bitcoin Cash (BCH) var búin til úr Bitcoin „hard fork“ aðgerð árið 2017 og er ný útgáfa af bitakeðjunni með öðruvísi reglum.
PaxForex býður upp á 60 gjaldmiðlapör, þar á meðal aðal, minni, og framandi. Þú getur líka miðlað með vinsælar rafmyntir gegnum CFD.
Af þeim fjórum rafmyntum sem eru í boði er Bitcoin vinsælust, en möguleikinn á að miðla með Litecoin, Ripple og Ethereum gæti einnig haft áhrif á alvöru aðdáendum rafmynta.
Miðlunin býður yfir 40 mismunandi CFD fyrir hlutabréf, þar á meðal sex fyrirtæki á lista NASDAQ, svo sem Apple og Google, auk 38 NYSE listaðra fyrirtækja, allt frá Disney til Home Depot.
PaxForex leyfir þér að miðla með CFD fyrir gull eða silfur, með samkeppnishæfum verðbilum og skiptum á punktmálma. Því miður er ekki hægt að nota miðlun á samfélagsmiðlum eða hermimiðlun.
ÖRYGGI OG REGLUGERÐIR
Eitt af því fyrsta sem að væntanlegur miðlari þarf að vita er hvort að miðlun eins og PaxForex sé örugg til miðla með. Einn af slíkum mælikvörðum á öryggi miðlunar er að finna út hvaða eftirlitsyfirvöld eru varðhundar gjörða hennar.
Laino Group er eigandi PaxForex vörumerkisins og sem sem slíkur skráður í St. Vinsent og Grenadínum með skráninguna nr. 21973 IBC 2014 1825.
Í samræmi við reglugerð sína SVGFSA, verð sjóðir viðskiptavina hjá PaxForex að vera geymdir á aðskildum reikningum hjá fjárfestingarbönkum á mælikvarða evrópskra banka frá eigin rekstrarreikningum miðlunarinnar.
PaxForex er meðlimur Investor Compensation Programme, sem ásamt aðskildum bankareikningum, ver sjóði viðskiptavinar ef til gjaldþrots kemur.
Þá SVGFSA sé traust eining, er eftirlitsyfirvaldið ekki eins strangt og aðrar eftirlitsstofnanir á borð við FCA og CySEC. PayForex er hinsvegar ekki undir eftirliti slíkrar heimsþekktrar fjármálaeftirlitsstofnunar.
ÞJÓNUSTUVER
Væntanlegir miðlarar verða að vera vissir um að miðlunin sem þeir velja bjóði nauðsynlegan stuðning og hjálp hvenær sem þeir þurfa á henni að halda.
Í tilviki PaxForex eru nokkrar leiðir í boði til að hafa sambandi við þjónustu við viðskiptavini. Fyrir stuðning á ensku, er til staðar símanúmer með breska landskóðanum og fax númer.
Viðskiptavinir geta beðið um endurhringingu frá PaxForex eða notað lifandi spjallið á vefsíðu PaxForex.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið sem gefið er upp eða hafa samband við PaxForex gegnum Facebook, Twitter, Linkedln, Instagram, Telegram eða YouTube. Stuðningur er í boði 24 tíma á dag, fimm daga á viku.
RANNSÓKNIR
Væntanlegir miðlarar ættu alltaf að rannsaka spámiðlun eins mikið og hægt er, áður en þeir byrja að nota hana.
Að miðla af öryggi og með árangri byggist að miklu leyti á þekkingu og skilningi á mörkuðum, því eru þau tækifæri til rannsókna sem miðlanir bjóða mikilvægur hluti af eiginleikum þeirra þegar rétta fyrirtækið til að stunda viðskipti með er valið.
PaxForex býður tól á borð við efnahagslegt dagatal og forex reiknivél, auk nokkurra annarra, þar á meðal veðkallsreiknivél og pip reiknivél.
Miðlarar geta bætt við viðskiptagerningum við reiknivélarnar og stillt gjaldmiðil reiknings, skuldsetningu, viðskiptagerning og lotur.
Einn hluti er tileinkaður daglegum mikilvægum og tæknilegum greiningum, með ítarlegum greinum sem birtast reglulega eftir sérfræðinga PaxForex. Forex blogg á PaxForex inniheldur rannsóknarupplýsingar einnig sem og upplýsingar til fræðslu og fréttir.
Expert Advisors er hefðbundinn eiginleiki á MT4 vettvanginum, sem samanstendur þjörkum sem munu framkvæma sjálfvirk viðskipti fyrir þína hönd, með því að nota fyrirfram stilltar áætlanir.
MENNTUN OG ÞJÁLFUN
Áður en verslun er hafin, ættu væntanlegir viðskiptavinir PaxForex að nýta sér allar mögulegar upplýsingar og hæfileika í miðlun sem þarf til að vegna vel í heimi forex og vöruviðskipta.
Ef vefsíða PaxForex veitir ekki nægilegar upplýsingar, ættu miðlarar að skoða aðrar upplýsingaveitur og leiðir til að öðlast færni og þekkingu.
Fræðsla fyrir miðlara hjá PaxForex býður upp á kennslustundir fyrir grunn Forex og orðabók yfir helstu hugtök.
Æfingarnar samanstanda af röð greina til að kynna gjaldeyrisviðskipti og samanstanda af 17 æfingum sem fara yfir hugtök í forex, greiningu, tæknilega vísa, forex áætlanir, gröf, stefnur, o.s.frv. Þar er einnig að finna æfingar fyrir CFD, Warren Buffet áætlun og upplýsingafréttir.
Orðabókin er í stafrófsröð og listi yfir hugtök og heiti notuð í viðskiptum með ítarlegum útskýringum.
SAMANTEKT
PaxForex er fyrirtæki sem vert er að skoða betur af vætanlegum miðlurum, þó að það sé aflandsmiðlun. Vegna þessa gæti PaxForex þjónar sem annar kostur fyrir þá miðlara sem hafa ekki efni á kröfunum um mörk á Bretlandi og evrópskum forex vettvöngum.
PaxForex býður upp á nokkrar þægilegar leiðir til að leggja inn á MT4 vettvanginn, þar af eiginleika sem hjálpa til við stigvaxandi flutning frá sýndarviðskiptum yfir í alvöru miðlun á reikningum sem þurfa mjög lítinn höfuðstól.
PaxForex veitir fræðsluefni og daglega greiningu og gæti orðið þekkt vörumerki í framtíðinni.
PAXFOREX VIÐ FYRSTU SÝN | |
| Nafn miðlunar | PaxForex |
| Höfuðstöðvar | Kingstown, Sankti Vinsent og Grenadínur |
| Stofnunarár | 2011 |
| Eftirlitsyfirvöld | SVGFSA #201973 IBC 2014 1825 |
| Lönd sem eru ekki samþykkt fyrir viðskipti | Bandaríkin, Þýskaland, Nýja Sjáland, Japan, Kanada |
| Íslamskur reikningur (Skiptilaus) | Já |
| Prufureikningur | Já |
| Stofnanareikningar | Já |
| Stýrðir reikningar | Já |
| Hámark skuldsetningar | 500:1 |
| Lágmarksinnlögn | 10 USD, mælt með 100 USD |
| Innlagnarmátar | VISA, MasterCard, Bitcoin, Ether/Ethereum, FasaPay, staðbundnar bankamillifærslur, Neteller, PerfectMoney, Qiwi, Skrill, WebMoney |
| Úttektarleiðir | VISA, MasterCard, Bitcoin, Ether/Ethereum, FasaPay, staðbundnar bankamillifærslur, Neteller, PerfectMoney, Qiwi, Skrill, WebMoney |
| Tegundir viðskiptavettvanga | MT4 |
| Samhæfi stýrikerfa | Fjölmiðstöðva fyrir PC og stýrikerfi farsíma, android, iOS og windows |
| Seljanlegar eignir | Gjaldmiðlar: (60+) Rafmyntir: (4) Bitcoin, Litecoin, Ethereum CFD: (5+) gull, silfur, hlutabréf |
| Tungumál studd á vefsíðu | Enska, portúgalska, laotíska, arabíska, rússneska, tælenska, kínverska |
| Tungumál þjónustuvers | Enska, portúgalska, laotíska, arabíska, rússneska, tælenska, kínverska |
| Opnunartími þjónustuvers | Allan sólarhringinn, fimm daga vikunnar |
ALGENGAR SPURNINGAR
VIÐSKIPTAUMHVERFI
Hversu marga fjárgerninga get ég verslað með hjá PaxForex?
- Þú getur miðlað með nokkur mismunandi verkefni hjá PaxForex, sem innifela eftirfarandi:
- Forex gjaldmiðla (60+)
- Rafmyntir: (4) Bitcoin, Litecoin, Ethereum
- CFD: (5+) gull, silfur, hlutabréf
Hvaða vettvanga styður PaxForex?
PaxForex býður upp á eftirfarandi vinsæla viðskiptavettvanga:
- MetaTrader4
Býður PaxForex upp á skuldsetningu?
Já, PaxForex býður upp á hámark skuldsetningar 1: 500
Hvaða verðbilum get ég átt von á hjá PaxForex?
PaxForex býður upp á breytileg verðbil á sínum fjölbreyttu reikningum, á milli 0,4 og 2,4. Ef ítaratriði á vefsíðunni eru ekki skiljanleg, er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá þjónustuverinu.
Innheimtir PaxForex þóknanir?
Frekari upplýsingar um þóknanir má finna hjá þjónustu stuðningsteymisins.
Er PaxForex undir eftirliti?
PaxForex er aðeins undir eftirliti SVGFSA
Er mælt með PaxForex sem gjaldeyrismiðlun fyrir sérfræðinga og byrjendur?
PaxForex býður upp á sanngjarnt viðskiptaumhverfi fyrir allar gerðir miðlara.
Hver er heildareinkunn af 10 fyrir PaxForex?
6/10
REIKNINGAR
Hver er munurinn á prufu og virkum viðskiptareikningi?
Miðlunarfyrirtæki bjóða upp prufureikning sem er fjármagnaður með sýndarpeningum og gerir væntanlegum viðskiptavinum kleift að prófa sig áfram með viðskiptavettvang fyrirtækisins og eiginleika hans, áður en alvöru reikningur er settur upp sem er fjármagnaður með alvöru fé kúnnans.
Býður PaxForex upp á prufureikning?
Já
Get ég breytt mínum prufureikningi í virkan viðskiptareikning hjá PaxForex?
Ekki ljóst miðað við upplýsingarnar á heimasíðu fyrirtækisins.
Upp á hvaða virku viðskiptareikninga býður PaxForex?
- Íslamskan reikning
- Sentreikning
- Míníreikning
- Hefðbundinn reikning
- VIP reikning
- Prufureikning
Hvaða innlagnargjaldmiðlar eru í boði fyrir virkan viðskiptareikning?
USD, EUR, og GBP
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
Hver er lágmarksinnlögn hjá PaxForex ?
10 $
Hvernig framkvæmi ég innlögn og úttekt hjá PaxForex?
PaxForex býður upp á eftirfarandi innlagnar og úttektarleiðir:
- VISA, Mastercard
- Bitcoin, Ether/Ethereum
- FasaPay
- Staðbundnar bankamillifærslur
- Neteller
- PerfectMoney
- Qiwi
- Skrill
- WebMoney
Yfirleitt þarf að nota sömu aðferð og var notuð til að leggja inn á reikning til að að taka út fé, sem verður aðeins lagt inn á reikninga með sama nafni og viðskiptareikningurinn.
Innheimtir Paxforex úttektargjöld?
Já, úttektir með bankamillifærslu munu aðeins kosta gjöld í banka, úttektir með kredit/debetkortum kosta 5,5% og úttektir inn á rafveski kosta allt að 3,9%.
Hvað tekur úttekt langan tíma?
Úttektir með ákveðnum leiðum gætu verið framkvæmdar innan eins dags en miðað við bankaþjónustur gæti það tekið nokkra daga fyrir peningana að verða tiltæka.
FYRIRVARI
PaxForex varar alla væntanlega miðlara við því að viðskipti með Forex og CFD fela alltaf í sér mikla áhættu og gætu ekki hentað öllum fjárfestum.
Áður en viðskiptavinir ákveða að miðla með þær vörur sem PaxForex býður upp á, er þeim ráðlagt að íhuga vandlega fjárfestingarmarkmið sín, fjárhagsstöðu, þarfir og eigin reynslu áður en þeir fjárfesta með peningum sem þeir hafa ekki efni á að tapa.
Þegar miðlarar nota PaxForex, ættu þeir að viðhalda nægilegu svigrúmi til að viðhalda stöðum sínum, þar sem miðlun með Forex/CFD og valrétti á lánsfé felur í sér mikla áhættu.
Að nota hærri skuldsetningu en nauðsynlegt er getur unnið á móti miðlaranum sem og með honum. Það er alltaf möguleiki á að þú gætir tapað hluta af eða allri þinni upphaflegu fjárfestingu.
Þó PaxForex geri vanalega allt sem hægt er til að klára viðskipti á því verði sem beðið var um, minnkar miðlun á netinu ekki endilega áhættuna sem tengist gjaldmiðlaviðskiptum, því eru tilboð og viðskipti vanalega háð þeim skilmálum og skilyrðum sem finna má í Samningnum við viðskiptavininn.
Væntanlegir miðlarar ættu fyrst að kynna sér allar þær áhættur sem tengjast miðlun með lánsfé og fá ráð frá sjálfstæðum fjármálaráðgjafa ef þeir eru í einhverjum vafa, sýnir nýlega gerð rannsókn okkar.
Þú gætir einnig haft áhuga á OctaFX Skoðun


