YFIRLIT YFIR IRONFX SEM FOREX MIÐLUNARFYRIRTÆKI
KYNNING
Samkvæmt rannsóknum okkar, er Iron FX leiðandi verðbréfafyrirtæki á netinu.
Gjaldeyrismiðlanir eru fyrirtæki sem veita miðlurum aðgang að vettvangi sem gerir þeim kleift að kaupa og selja erlenda gjaldmiðla.
Millifærslur á þessum markaði eru alltaf á milli pars af tveim mismunandi gjaldmiðlum, svo Forex miðlarar kaupa annaðhvort eða selja það par sem þeir vilja versla með. Einnig er hægt að vísa til Forex miðlana sem smásölu forex miðlana, eða miðlana í gjaldeyrisviðskiptum.
Flest fyrirtæki í gjaldeyrisviðskiptum höndla aðeins lítinn hluta af heildarmagni gjaldeyrisviðskiptamarkaðarins.
Gjaldeyrismiðlarar í smásölu nota þessar miðlanir til að fá aðgang að gjaldeyrismarkaði sem er opinn allan sólarhringinn til að spá fyrir um gengi. Forex þjónustur miðlana eru einnig veittar fyrir viðskiptavini stofnana fyrir stærri fyrirtæki á borð við fjárfestingabanka.
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Einkunn
Reglustofnanir
Vettvangar
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Dulritun
Opinber síða
🥇
4.7/5
ASIC, FSA, CBI, BVI, FSCA, FRSA, CySEC, ISA, JFSA
MT4, MT5, Avatrade Social
USD 100
400:1
Já
5
4.9/5
CySEC, FSCA, FCA, FSA, DFSA, CMA, St. Vincent & the Grenadine
MT4, MT5, HFM App, HFM Copy Trading
USD 0
2000:1
Já
7
4.9/5
ASIC, BaFin, CMA, CySEC, DFSA, FCA, SCB
MT4, MT5, cTrader, Tradingview, Pepperstone Platform
USD 10
400:1
Já
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Opinber síða
SAGA OG HÖFUÐSTÖÐVAR IRONFX
IronFX er með höfuðstöðvar í Limassol, Kýpur. Fyrirtækið var stofnað í árið 2010, og stækkaði fljótt til að opna skrifstofur í London og Sydney.
Í dag er boðið upp á þjónustu við íbúa í nærri 200 löndum yfir Afríku, Evrópu, Suður-Ameríku, Asíu og Mið-Austurlönd.
IronFX sérhæfir sig í miðlunarþjónustu á netinu og býður miðlurum upp á tækifæri til að miðla með meira en 200 fjárgerninga yfir fjölmarga markaði: forex, málmar, vísitölur, vörur, framvirkir samningar og hlutabréf.
Fyrirtækið býður miðlurum upp á öfluga viðskiptavettvanga, úrval miðlunartóla, þróaða tækni og stuðning 24/5 á mörgum tungumálum til að tryggja jákvæða upplifun miðlara.
IronFX býður einnig miðlurum upp á fría VPS hýsingu sem og hermiforritið AutoTrade gegnum myFXbook.
Vegna lagalegra takmarkanna er því miður ekki leyft að bjóða þjónustur til þegna Bandaríkjanna, Kúbu, Súdan, Sýrlands og Norður-Kóreu.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
Þegar verið er að ákveða hvaða Forex miðlun ætti að velja, taka margir væntanlegir miðlarar mið af þeim verðlaunum sem ákveðinn miðlun hefur hlotið yfir þau ár sem hún hefur verið starfandi.
Sem slík eru þessi verðlaun vísbending um heildarframmistöðu miðlunarinnar, eiginleika og vettvanga þar sem hún skarar fram úr, og hennar almennu stöðu innan bransans.
Það eru ekki allar miðlanir sem taka þátt í verðlaunaafhendingum, og því ætti að taka mið af því ásamt heildarboði miðlunarinnar.
Þó að IronFX bjóð upp á samkeppnishæft markaðsumhverfi, hefur það ekki fengið nein verðlaun til þessa dags.
REIKNINGAR IRONFX
Forex reikningur er notaður til að geyma og versla með erlenda gjaldmiðla. Að fá aðgang að forex markaðinum gegnum miðlun felur í sér að opna reikning, leggja inn fjármagn í þínum uppgefna gjaldmiðli, og versla með gjaldmiðla.
Þó það virðist nógu einfalt, er það einna mikilvægast að velja réttan reikning þegar valinn er rétt miðlun, þar sem tegund reikningsins getur haft bein áhrif á hagnað og tap.
Forex markaðurinn samanstendur gjarnan af fjölbreyttu úrvali miðlara, þar á meðal eru byrjendur, miðlarar með nokkurra reynslu, reyndir atvinnumenn og stofnanir, svo að það eru margar tegundir af reikningum í boði.
Sem slíkt er eitt það mikilvægasta að hafa í huga þegar ákveðið er hvaða reikningur hentar þér er færslukostnaður, verðbil og þóknanir, viðskiptaferli, viðskiptahugbúnaður og vettvangar, og úrval markaða í boði.
GERÐIR REIKNINGA OG EIGINLEIKAR
IronFX býður upp á nokkrar gerðir reikninga til að velja úr. Hver hefur sína kosti og þjónustar miðlara með mismunandi þarfir, reynslustig og stíla.
Míkróreikningur
- 500 $ lágmarksinnlögn
- Sveigjanleg skuldsetning frá 1:1 allt að 1:500
- Föst eða breytileg verðbil
Úrvalsreikningur
- 2.500 $ lágmarksinnlögn
- Traustur sjóðstjóri til staðar allan sólarhringinn
- Aðgangur að 10 grunngjaldmiðlum
VIP reikningur
- Lágmarksinnlögn er 20.000 USD
- Hægt að miðla með mínílotur
STP/ECN reikningar
- 500 $ lágmarksinnlögn
- Sveigjanleg skuldsetning frá 1:1 allt að 1:200
- Hægt að miðla með mínílotur
Zero reikningur með föstum verðbilum
- 500 $ lágmarksinnlögn
Spegilreikningur
- Lægri stöðvunarstig
- Skuldsetning allt að 1:200 fyrir STP reikning
Stofnanir og atvinnumiðlarar fá val um eftirfarandi reikninga:
- Umboðsmannsreikningur
- Umboðsmannsplúsreikningur
- Viðskiptareikningur
- Stýrðir reikningar
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
IronFX býður miðlurum upp fjölda ókeypis og auðveldar leiðir fyrir innlagnir og úttektir:
- Kredit/debetkort
- Bankamillifærsla
- China Union Pay
- FasaPay
- Neteller
- Skrill
- Paysafe Deposit
- Perfect Money
- BitWallet
- UnionPay International
- WebMoney
- Rafmynt
Enginn gjöld fyrir innlögn eru innheimt, þó miðlarar ættu að hafa í huga að greiðsluveitandi eða bankastofnun gæti innheimt einhver gjöld.
Aðeins er hægt að taka út hagnað af miðlun með bankamillifærslu, og aðeins er hægt að taka út upphaflegar innlagnir með sömu greiðsluaðferð.
KOSTNAÐUR OG GJÖLD, ÞÓKNANIR OG VERÐBIL
Kostnaðurinn við miðlun er heildarkostnaðurinn sem að forex miðlari greiðir til að halda úti sínum viðskiptarekstri.
Fyrir hver viðskipti sem eru sett af stað, þarf miðlari að greiða ákveðna upphæð í kostnað og þóknanir. Þessi kostnaður er mismunandi frá miðlun til miðlunar, en þetta er yfirleitt lág upphæð, og er oft eini kostnaðurinn við miðlun sem miðlari þarf líklega að greiða.
Algengast kostnaðurinn sem tengist viðskiptum eru verðbilsgjöldin og þóknanirnar sem miðluninn innheimtir fyrir hver viðskipti. Þennan kostnað þarf miðlari að greiða, sama hversu farsæl þessi viðskipti eru.
Verðbilið er munurinn á milli tilboðs og söluverðs gjaldmiðlapars, og er það sem miðlunin innheimtir, og er í grunninn hvernig miðlanir skila hagnaði.
Til að miðlari hagnist eða forðist að tapa á viðskiptum, verður verðið að breytast nógu mikið til að ná yfir kostnað verðbilsins.
Þóknun er svipuð og verðbilið að því leyti að hún er innheimt fyrir hver viðskipti miðlarans. Viðskiptin verða því að vera arðbær til að ná yfir kostnað þóknunarinnar.
Miðlarar ættu einnig að hafa í huga hugsanlega falin gjöld sem sumar miðlanir gætu lagt á, sem innifela óvirknigjöld, mánaðarlegt eða ársfjórðungslegt lágmark og jaðarkostnað.
IronFX innheimtir þóknanir fyrir Zero Fixed og Zero Spread reikningagerðirnar.
Fyrirtækið innheimtir verðbil fyrir míkró-, úrvals-, VIP og þóknanalausa reikninga. Verðbilum er bætt við verðtilboðin. Þessi gjöld eru háð þessum reikningagerðum einnig þar sem miðlað er með ákveðin gjaldmiðlapör.
Fast 50 $ rekstrargjald er innheimt árlega fyrir reikninga sem sýna enga virkni eða innlagnir í meira en ár. Sé innistæða reiknings fyrir neðan 50 $ verða eftirstöðvarnar teknar og reikningnum verður lokað.
3% rekstargjald verur innheimt af innistæðu reiknings ef það eru til staðar innlagnir og úttektir á reikningnum, en engin miðlunarvirkni.
SKULDSETNING
Skuldsetning er í raun höfuðstóll sem að miðlari fær að láni frá miðlun til að auka mögulegan gróða. Stærð Forex skuldsetningar fer vanalega yfir fjárfestan höfuðstól nokkrum sinnum.
Mismunandi miðlanir bjóða mismunandi stig skuldsetningar sem er vanalega ákvörðuð af viðskiptaskilyrðum ákveðinnar miðlunar.
Lögsagnarumdæmi svæðis kemur líka við sögu, þar sem EES ákvað nýverið að setja þak á skuldsetningu sem miðlanir sem starfa á efnahagssvæðinu mega bjóða, vegna mikillar áhættu sem vanalega fylgir þessu ferli.
Á endanum veltur valið um stig skuldsetningar á áætlun miðlarans sjálfs og raunsærri sýn á framtíðarhreyfingar markaðarins.
Hvað þetta varðar, nota fljótvirkir miðlarar vanalega háa skuldsetningu til að ná skjótum gróða, á meðan afstöðumiðlarar vilja heldur lága skuldsetningu.
IronFX býður upp á hámark skuldsetningar 1:200. Hinsvegar er stig skuldsetningar allt að 1:1000 leyft fyrir ákveðna reikninga. Hlutfall skuldsetningar er hátt þar sem þetta getur hugsanlega aukið hagnað miðlarans, en felur einnig í sér hættu á miklu tapi og ætti að íhuga mjög vandlega.
BÓNUSAR
Margar Forex miðlanir bjóða upp á ýmsa bónusa sem hvata fyrir nýja miðlara til að skrá sig hjá þeim.
Vanalega eru Forex bónusar einstakir eða sérstakt árstíðabundið tilboð. Almennt séð eru tegundir Forex bónusar einnig þekktir undir nafninu kynningar.
Bónusar sem eru þekktir sem afslættir eru lagðir inn á reikning miðlara um leið og þeir hafa lokið viðskiptum, á meðan hefðbundnir bónusar gætu farið fram á að fjölda viðskipta verði lokið fyrst.
IronFX býður upp á möguleika á að vinna frábær verðlaun eða endurgreiðslur í reiðufé þegar tekið er þátt í lifandi miðlunarkeppnum. Þær voru búnar til til að auka reynslu í viðskiptum.
Þú gætir einnig haft áhuga á Instaforex Skoðun
VIÐSKIPTAVETTVANGAR, HUGBÚNAÐUR OG EIGINLEIKAR HANS
Viðskiptavettvangur er í grunninn hugbúnaður sem er studdur af ákveðinni miðlun til að stunda viðskipti á Forex markaðnum. Að velja réttan vettvang er líka mikilvægur liður í því að velja hentuga miðlun.
Þetta gæti veri gátt á vefnum, farsímaapp, sjálfstætt niðurhalanlegt forrit, eða hverskyns samsetning af þessu þrennu. Vettvangurinn gæti einnig veitt tól til rannsókna auk tóla til að vinna fyrirmæli.
Sumar Forex miðlanir bjóða upp á sína eigin sérsniðnu vettvanga fyrir vinnslu fyrirmæla og rannsóknir, en margar bjóða aðgang að fyrirmælum gegnum innbyggð viðskipta- og rannsóknaforrit.
IronFX býður miðlurum upp á öfluga og áreiðanlega vettvanga til að miðla á. Þessir vettvangar innifela allir hraða framkvæmd fyrirmæla og gagnleg tól til að tryggja ábatasama viðskiptaupplifun með sem minnstri áhættu.
Ávinningar MetaTrader 4:
- Einn af áreiðanlegustu og vinsælustu vettvöngunum
- Aðgangur að meira en 200 fjárgerningum í CFD fyrir forex, punktmálma, framvirk viðskipti, hlutabréf punktvísitölur og vörur
- Ofurhröð framkvæmd fyrirmæla
- Verðbil frá svo litlu sem 0 pip
- Umsjón fyrirmæla, staða og eigna á netinu
- Allar tegundir fyrirmæla og framkvæmdahamir
- Umsjón með verði fjárgerninga og forex verðum
- Þróuð gerð grafa og vísar
- Steymandi fréttir í beinni
- Virkniskýrslur
Ávinningar WebTrader:
- Vettvangur þróaður innan fyrirtækis af IronFX
- Aðgangur að fjöleignamiðlunarreikningum fyrirtækisins
- Ekkert niðurhal og er hægt að nota frá hvaða nettengdri borðtölvu sem er
- 100% vefbyggður vettvangur, fjaraðgangur að þínum MT4
- Að fullu samræmanlegt með niðurhalanlegum útgáfum MT4
- Umsjón með verði fjárgerninga og forex verðum
- Vefstöðvar er hægt að nota án skráningar í MQL5 samfélagið
- Það er nútímalegt HTML5 forrit sem keyrir án hverskyns vafraviðbóta eða umbóta
- Örugglega dulkóðað og öruggt að nota
Ávinningur VPS hýsingar:
- Leyfir framkvæmd einstakra markaðsskilyrða sem vanalega eru ekki tiltæk vegna tíma og landfræðilegrar stöðu
- Áreiðanleg, sveigjanleg og skalanleg
- Tilvalið fyrir smásölumiðlara
- Hægt að setja upp VPS hýsingu með því að nota vettvang Microsoft Windows Server
- Leyfir samhliða vinnslu Expert Advisor (EA)
- Hægt að keyra viðskiptaval á sama tíma
PAMM ávinningur:
- Mælt með fyrir bæði atvinnumiðlara og umsjáraðila fjármagns
- Umsjón fyrirmæla, staða og eigna á netinu
- Fyrirmæli með einum smelli
- Stýra óteljandi reikningum
- Umsjón með verði fjárgerninga og forex verðum
- Virkniskýrslur
- Studd stýrikerfi: Microsoft Windows 98 eða hærra
MARKAÐIR, VÖRUR OG GERNINGAR
Flestar miðlanir bjóða upp á einhver af eftirfarandi markaðsgerningum fyrir viðskipti:
Gjaldeyrisviðskipti:
Forex miðlun, einnig þekkt sem FX miðlun, snýst um gjaldeyrisskiptamarkaðinn þar sem einstaklingar, fyrirtæki og fjármálastofnanir skiptast á gjaldmiðlum á fljótandi gengi.
Vörur:
Eins og með gjaldeyrisskiptamarkaði, bjóða vörumarkaðir upp á öðruvísi fjárfestingartækifæri fyrir miðlara. Fjárfesting í samningsbundnum seljanlegum vörum er áreiðanleg leið til að draga úr áhættu á tímum verðbólgu eða efnahagsóvissu.
Vísitölur:
Eignir eða hlutabréfavísitölur eru alvöru vísitölur hlutabréfamarkaðsins sem mæla verðgildi ákveðins hluta af hlutabréfamarkaði. Þær geta staðið fyrir mengi stærstu fyrirtækja eins lands eða staðið fyrir einn ákveðinn hlutabréfamarkað.
Verðmætir málmar:
Viðskipti með gull og aðra verðmætir málma fela í sér hrávörur sem eru samningsbundnar, seljanlegar vörur.
Orka:
Óstöðugleiki orkuverðs vegna ástands í stjórnmálum eða umhverfi, framboðs og eftirspurnar, öfga í veðurfari og hnattræns hagvaxtar er dæmigerður eiginleiki þessarar vöru, sem gerir hana að öðrum vinsælum valkosti til að versla með.
IronFX býður upp á aðgang að fjölbreyttu úrvali miðlanlegra eignaflokka. Þeir innihalda forex, grunn- og verðmæta málma, vísitölur, framvirka samninga sem og hlutabréf.
Miðlarar hafa aðgang að sérstökum forex fréttum, lifandi forex verðum, tæknilegri greiningu og bestu verðbilunum, punktframkvæmd og öðrum mjög samkeppnishæfum viðskiptaskilyrðum.
ÖRYGGI OG REGLUGERÐIR
Forex markaðurinn er einn af stærstu fjármálamörkuðum í geiranum, svo það að finna leið í þessum hafsjó af hugsanlegum hagnaði krefst ákveðins stigs af undanlátssemi til að draga úr hverskyns óþörfum áhættum eða tapi.
Öruggt viðskiptaumhverfi er best fengið gegnum miðlanir sem hafa heimild frá virtum eftirlitsaðilum, sem tryggja að sjóðir viðskiptavinar séu verndaðir og að miðlanir séu endurskoðaðar reglulega fyrir tryggt gegnsæi.
IronFX er undir eftirliti fjölda virtra fjármálayfirvalda og fer eftir ströngum reglum og reglugerðum hvað varðar vernd á sjóðum viðskiptavina og öruggum viðskiptaháttum. Þær eru meðal annars:
- Cyprus Security and Exchange Commission (CySEC)
- Australian Securities and Investments Commission (ASIC)
- Financial Conduct Authority (FCA) of the United Kingdom
- Financial Services Board (FSB) í Suður-Afríku
ÞJÓNUSTUVER
Áreiðanleg þjónusta við viðskiptavini er annar mikilvægur þáttur í því að velja rétta miðlun, þar sem skortur á góðri þjónustu við viðskiptavini getur leitt til þess að áríðandi mál fái ekki lausn og hafi áhrif á miðlun viðskiptavinarins.
Tæknileg aðstoð er sérstaklega mikilvæg til að hjálpa miðlurum að stýra sínum sjóðum og nota vettvanginn á áhrifaríkan hátt. Góð þjónusta við viðskiptavini þýðir einnig að fyrirspurnir eru höndlaðar fljótt og leystar vel.
IronFX býður miðlurum upp á sterkt stuðningsteymi til að tryggja að vandamál sé leyst á skilvirkan og öruggan hátt og að reynsla miðlara sé jákvæð.
Stuðningsteymið er einbeitt faglegt og býður upp á aðstoð á 17 tungumálum, þar á meðal ensku, slóvakísku, þýsku, frönsku, ítölsku, pólsku, portúgölsku og kínversku.
Miðlarar geta haft samband við stuðningsteymið gegnum síma, tölvupóst, Skype, lifandi spjall eða beðið um hringingu til baka, allan sólarhringinn, fimm daga vikunnar.
RANNSÓKNIR
Miðlarar leita oft til miðlana sem veita ágæt rannsóknartól, þar sem góð greiningartæki geta leikið lykilhlutverk í að stunda ábatasöm viðskipti á oft óstöðugum mörkuðum.
Margar miðlanir bjóða úrval greiningartóla sem leyfa miðlurum að ver viðbúnir breytingum á Forex markaðnum og bregðast við í samkvæmt.
Forex greining er notuð af smásölumiðlurum á forex til að ákvarða kaup eða sölu á gjaldmiðlapörum. Þær geta verið tæknilegs eðlis, með því að nota aðföng eins og tól til gerðar grafa.
IronFX veitir rannsóknartól til að aðstoða miðlara í að taka réttar viðskiptaákvarðanir. Þessi tól innifela markaðsfréttir og greiningu sérfræðinga gegnum markaðsinnsýn fyrirtækisins. Ítarlegt efnahagslegt dagatal er einnig í boði.
MENNTUN OG ÞJÁLFUN
Byrjendur í miðlun vilja finna miðlun sem býður upp á nægar rannsóknir og þjálfunartól til að öðlast nauðsynlega færni til að hagnast á viðskiptum.
Þessi þjálfunatól ná frá algjörum grunni Forex miðlunar til þróaðri vefnámskeiða og kúrsa, sem reyndari miðlarar geta einnig notað.
Forex miðlanir sem bjóða ekki upp á rannsóknartól einblína vanalega á reynda atvinnumiðlara, sem munu einblína meira á tilboð miðlunar við að framkvæma viðskipti.
IronFX býður upp á lítið sem ekkert fræðsluefni og tól á vefsíðu sinni.
Með því að fara á síðu fyrirtækisins fyrir tæknilega greiningu, verða notendur sendir áfram til viðskiptamiðstöðvarinnar. Hér er hægt að horfa á myndbönd sem bjóða frábæra aðstoð með viðskiptaráðum og öðrum gagnlegum upplýsingum.
Listi yfir Algengar spurningar er tiltækur, svo og prufureikningur fyrir þá sem óska eftir að æfa viðskipti áður en virkur reikningur er opnaður.
SAMANTEKT
Þó IronFX bjóði ekki upp á mikið af rannsóknartólum og fræðslu, býður hún upp á mikla skuldsetningu, frábæra þjónustu við viðskiptavini, öfluga viðskiptavettvanga og meira en 200 gerninga til að miðla með.
Þetta, ásamt lágum kostnaði, hraðri framkvæmd fyrirmæla og viðskiptaháttum undir eftirliti, skapa samkeppnishæft viðskiptaumhverfi fyrir miðlara í smásölu og stofnanir.
IRONFX VIÐ FYRSTU SÝN | |
| Nafn miðlunar | IronFX |
| Höfuðstöðvar | Limassol, Kýpur |
| Stofnunarár | 2010 |
| Eftirlitsyfirvöld |
|
| Lönd sem eru ekki samþykkt fyrir viðskipti | Bandaríkin, Kúba, Súdan, Sýrland og Norður-Kórea. |
| Íslamskur reikningur (Skiptilaus) | Já |
| Prufureikning | Já |
| Stofnanareikningar | Já |
| Stýrðir reikningar | Já |
| Hámark skuldsetningar | 1:1000 |
| Lágmarksinnlögn | 100 USD |
| Innlagnarmátar |
|
| Úttektarleiðir |
|
| Tegundir viðskiptavettvanga | MetaTrader 4 WebTrader |
| Samhæfi stýrikerfa | Borðtölvur, iOS og Android |
| Seljanlegar eignir | Forex, málmar, vísitölur, vörur, framvirkir samningar og hlutabréf. |
| Tungumál studd á vefsíðu | Enska, slóvakíska, þýska, spænska, franska, ítalska, pólska, portúgalska og kínverska |
| Tungumál þjónustuvers | Enska, slóvakíska, þýska, spænska, franska, ítalska, pólska, portúgalska og kínverska |
| Opnunartími þjónustuvers | Allan sólarhringinn fimm daga vikunnar |
ALGENGAR SPURNINGAR
VIÐSKIPTAUMHVERFI
Hversu marga fjárgerninga get ég verslað með hjá IronFX?
IronFX býður upp á úrval eigna til að miðla með, þar á meðal eru forex, málmar, vísitölur, vörur, framvirkir samningar og hlutabréf.
Hvaða vettvanga styður IronFX?
IronFX býður eftirfarandi vettvanga:
- MetaTrader 4
- WebTrader
Býður IronFX upp á skuldsetningu?
Já, IronFX býður upp á hámark skuldsetningar 1:1000.
Hvaða verðbilum get ég átt von á hjá IronFX?
Verðbil IronFX eru háð þessum reikningagerðum sem og þar sem miðlað er með ákveðin gjaldmiðlapör.
Innheimtir IronFX þóknun?
Já, IronFX innheimtir þóknun á sínum ZERO reikningum.
Er IronFX undir eftirliti?
Já, IronFX er undir eftirliti Cyprus Securities and Exchange Commission (CySEC), Australian Securities and Investments Commission (ASIC) sem og Financial Conduct Authority (FCA).
Er mælt með IronFX sem gjaldeyrismiðlun fyrir sérfræðinga og byrjendur?
Já, IronFX hentar bæði fyrir byrjendur sem sérfræðinga í miðlun.
Hver er heildareinkunn af 10 fyrir IronFX?
7/10
REIKNINGAR
Hver er munurinn á prufu og virkum viðskiptareikningi?
Miðlunarfyrirtæki bjóða upp prufureikning sem er fjármagnaður með sýndarpeningum og gerir væntanlegum viðskiptavinum kleift að prófa sig áfram með viðskiptavettvang fyrirtækisins og eiginleika hans, áður en alvöru reikningur er settur upp sem er fjármagnaður með alvöru fé kúnnans.
Býður IronFX upp á prufureikning?
Já
Get ég breytt mínum prufureikningi í virkan viðskiptareikning hjá IronFX?
Nei
Upp á hvaða virku viðskiptareikninga býður IronFX?
IronFX býður upp á úrval viðskiptareikninga, hver með sínum eiginleikum:
- Míkróreikningur
- Úrvalsreikningur
- VIP reikningur
- STP/ECN reikningar
- Zero reikningur með föstum verðbilum
- Spegilreikningur
Hvaða innlagnargjaldmiðlar eru í boði fyrir virkan viðskiptareikning?
USD, EUR, GBP, AUD, JPY, CHF, PLN, RUB og HUF
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
Hver er lágmarksinnlögn hjá IronFX?
100 USD
Hvernig framkvæmi ég innlögn og úttekt hjá IronFX?
Miðlarar geta lagt inn eða tekið út með eftirfarandi:
- Kredit/debetkort
- Bankamillifærsla
- China Union Pay
- FasaPay
- Neteller
- Skrill
- Paysafe Deposit
- Perfect Money
- BitWallet
- UnionPay International
- WebMoney
- Rafmynt
Innheimtir IronFX úttektargjöld?
Nei, en gjöld frá fjármálastofnunum gætu átt við.
Hvað tekur úttekt langan tíma?
Úttektartími fer eftir bankastofnunum og er yfirleitt 1 – 3 virkir dagar.
FYRIRVARI
IronFX er vörumerki Notesco Limited. Notesco Limited með skráningarnúmerið 51491 er fyrirtæki skráð í Bermúda.
Athugaðu: Þjónusta sem sýnd er á vefsíðum eru í boði Notesco Limited og ekki frá samstarfsaðila.
Áhættuviðvörun: Verslað er með vörur fyrirtækisins gegn veði og fela í sér mikla áhættu þar sem möguleiki er á að þú tapir öllum þínum höfuðstól.
Þessar vörur gætu ef til vill ekki hentað öllum og þú ættir að tryggja að þú skiljir undirliggjandi áhættu.
Að miðla með vörur eins og Forex og CFD gæti ekki hentað öllum fjárfestum þar sem þær bera háan áhættustuðul fyrir þinn höfuðstól.
Það er mjög mikilvægt að þú stundir ekki viðskipti með peningum sem þú mátt ekki við að tapa því að þrátt fyrir hversu miklar rannsóknir þú hefur lagst í, eða hversu örugg/ur þú ert með þína miðlun, mun alltaf koma að því að þú tapir.
IronFX býður ekki upp á þjónustu til þegna ákveðinna umdæma á borð við BNA, Kúbu, Súdan, Sýrlands og Norður-Kóreu, samkvæmt rannsókn okkar.
Þú gætir einnig haft áhuga á Interactive Brokers Skoðun
Efnisyfirlit



