YFIRLIT YFIR HYCM SEM FOREX MIÐLUNARFYRIRTÆKI
KYNNING
Samkvæmt okkar nýjustu rannsóknum, er HYCM breskt forex miðlunarfyrirtæki sem er staðsett í London, Bretlandi.
Gjaldeyrismiðlanir eru fyrirtæki sem veita miðlurum aðgang að vettvangi sem gerir þeim kleift að kaupa og selja erlenda gjaldmiðla.
Einnig er hægt að vísa til Forex miðlana sem smásölu Forex miðlana eða miðlana í gjaldeyrisviðskiptum. Gjaldeyrismiðlarar í smásölu nota þessar miðlanir til að fá aðgang að gjaldeyrismarkaði sem er opinn allan sólarhringinn til að spá fyrir um gengi.
Forex þjónustur miðlana eru einnig veittar fyrir viðskiptavini stofnana og stórra fyrirtækja á borð við fjárfestingabanka.
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Einkunn
Reglustofnanir
Vettvangar
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Dulritun
Opinber síða
🥇
4.7/5
ASIC, FSA, CBI, BVI, FSCA, FRSA, CySEC, ISA, JFSA
MT4, MT5, Avatrade Social
USD 100
400:1
Já
5
4.9/5
CySEC, FSCA, FCA, FSA, DFSA, CMA, St. Vincent & the Grenadine
MT4, MT5, HFM App, HFM Copy Trading
USD 0
2000:1
Já
7
4.9/5
ASIC, BaFin, CMA, CySEC, DFSA, FCA, SCB
MT4, MT5, cTrader, Tradingview, Pepperstone Platform
USD 10
400:1
Já
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Opinber síða
SAGA OG HÖFUÐSTÖÐVAR HYCM
HYCM er miðlun sem var áður þekkt sem HYMarkets. Hún er meðlimur Henyep Group sem var stofnuð árið 1977 og er alþjóðlegt fjármálaeignarhaldsfélag.
Henyep hefur stofnað til viðskipta í Asíu, Evrópu og Bandaríkjunum Deildir Henyep Securities og Henyep Commodities voru sérstaklega skapaðar til að þróa viðskipti í Asíu.
HYCM var stofnað árið 2016 þegar Henyep Group sameinaði sína fjármálamarkaði með það sérstaka markmið að komast á sviðið hvað varðar viðskipti á netinu mörgum vettvöngum.
Hún starfrækir skrifstofu á Kýpur, og hefur viðveru í Hong Kong og Dúbaí.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
HYCM hefur unnið til meiri en tuttugu verðlauna í þremur mismunandi flokkum:
Besta Forex miðlunin
- 2011 – Best Global Broker
- 2012 – Best FX Broker in Northern Europe
- 2014 – Best Broker in Eastern Asia
- 2017 – Best Forex Broker in UAE
- 2019 – Best Forex Broker
Besti viðskiptavettvangurinn
- Frá 2013 til 2019 hefur HYCM unnið þessi verðlaun
Besta þjónusta við viðskiptavini
- Árið 2012 vann HYCM til verðlauna sem Best Customer Service Provider og Best FX Mini Account Provider.
HYCM REIKNINGAR
Forex reikningur er viðskiptareikningur sem miðlari á hjá fyrirtæki eins og HYCM sem er fyrst og fremst stofnaður til að versla með gjaldmiðla.
Vanalega fer fjöldi og tegund reikninga sem miðlari getur opnað hjá miðlunarfyrirtæki eftir því í hvaða landi miðlunin vinnur, búsetulandi miðlara og reglugerðaryfirvöldum þess lögsagnarumdæmis sem miðlunin starfar í.
GERÐIR REIKNINGA OG EIGINLEIKAR
Hjá HYCM geta miðlarar valið á milli þriggja reikninga til að passa við mismunandi viðskiptahætti og reynslustig miðlara, hvort sem hann er byrjandi, fagmanneskja eða á fyrirtækjasviði.
Hinir þrír mismunandi reikningar eru fastur, klassískur og hrár.
Fastur reikningur
- Föst verðbil sem byrja frá 1,8 pip
- Engar þóknanir innheimtar
- 100 $ lágmarksinnlögn
- Lágmarksumfang viðskipta er 0,01
Klassískur reikningur
- Breytileg verðbil sem byrja frá 1,2 pip
- Engar þóknanir innheimtar
- 100 $ lágmarksinnlögn
- Lágmarksumfang viðskipta er 0,01
Hrár reikningur
- Hrá verðbil sem byrja frá 0,2 pip
- 4 $ þóknun fyrir hverja umferð
- 200 $ lágmarksinnlögn
- Lágmarksumfang viðskipta er 0,01
Allar þrjár tegundir reikninga geta notað MT4 eða MT5 vettvangana og notað EUR, USD, JPY, GBP eða CHF sem gjaldmiðil.
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
HYCM býður upp á eftirfarandi leiðir til að leggja inn sjóði:
- Bankamillifærslur – geta tekið allt að 1 – 7 virka daga.
- Visa Master Card – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- WebMoney – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- Neteller – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- Skrill Moneybookers – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
HYCM býður upp á eftirfarandi leiðir til að leggja inn sjóði:
- Bankamillifærslur – geta tekið allt að 1 – 5 virka daga
- Visa Mastercard – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- WebMoney – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- Neteller – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- Skrill Moneybookers – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
HYCM innheimtir ekki fyrir úttektir yfir 300 £, en kúnnar ættu að spyrjast fyrir hvort þeirra greiðsluveitandi innheimti gjald fyrir upphæðir sem eru millifærðar inni á bankareikning miðlarans.
Ef miðlarar nota Skrill eða Neteller er til staðar 1% vinnslugjald sem á við um úttektir yfir 5.000 $ sem verða dregnar frá af greiðsluveitanda.
Lágmarksúttekt fer eftir þeim úttektarmáta sem notaður er, sem er 20 $ þegar kredit/debetkort og rafveski eru notuð en lágmarksúttekt er 250 fyrir millifærslur á bankareikning.
KOSTNAÐUR OG GJÖLD, ÞÓKNANIR OG VERÐBIL
Viðskiptakostnaður fer eftir mismunandi þáttum eins og þóknunum, verðbilum og mörkum.
Verðbil gjaldmiðlapars er mismunurinn á milli tilboðs og ásetts verðs. Pip stendur fyrir þá minnstu breytingu sem gengi getur færst til. Eitt pip er 0,01 fyrir gjaldmiðlapör með JPY sem bundinn gjaldmiðil og 0,0001 fyrir öll önnur pör.
Mörk er sú upphæð fés sem þarf að vera inni á þínum reikning til geta opnað stöðu. Mörk eru reiknuð miðað við núverandi verð á grunngjaldmiðlinum á móti USD, stærð (umfangi) stöðunnar og skuldsetningunni sem notuð fyrir þinn viðskiptareikning.
Þóknanir eru þau gjöld sem fjárfestingarmiðlun innheimtir af miðlara fyrir að framkvæma viðskipti fyrir hans hönd. Stig skuldbindinga eru mismunandi eftir miðlunum og fer eftir eigninni sem miðlað er með og þeirri þjónustu sem miðlunin veitir.
Miðlanir sem sjá aðeins um framkvæmdina, það er þær miðlanir sem sjá ekki um hverskyns fjárfestingarráðgjöf og gefa miðlurum algjörlega frjálsar hendur um hvernig þeir versla á mörkuðum, hafa yfirleitt lægri þóknanir.
Miðlun með afleiðusamninga (CFD), sem er vinsælt form af afleiddum viðskiptum sem gerir miðlurum kleift að spá fyrir um hækkun eða lækkun verðs á hraðvirkum alþjóðlegum fjármálamörkuðum, krefst þóknunar fyrir að miðla með bréfin.
CFD viðskipti á öðrum mörkuðum bera engar þóknanir en auka verðbil markaðsverðsins fyrir ákveðinn gerning.
HYCM innheimtir ekki þóknanir, en fær greiðslur gegnum tilboðið eða tilboðsverðbilið hvað varðar hvern fjárgerning, ásamt tegund reikningsins.
Kúnnum er boðið upp á val á milli fastra og fljótandi verðbila, og hrárra verðbila með þóknun. Ennfremur er HYCM með næturgjöld sem eru þekkt sem skiptigjöld.
Gjaldið er ákvarðað af vaxtahlutfalli yfir nótt. Gjaldið kemur til þegar það er löng opin staða og getur annaðhvort verið að kaupa „langt“ eða selja „stutt“. Gjaldið er mismunandi frá einum gjaldmiðli til annars.
HYCM innheimtir óvirknigjöld, þar sem kúnnar eru rukkaðir um 10 $ á mánuði ef engin virkni er í ákveðinn tíma á viðskiptareikningnum.
Ekki eru innheimt gjöld fyrir innlagnir og úttektir, en miðlaðar verða að hafa samband við sinn greiðsluveitanda til að tryggja að engin aukagjöld séu innheimt af greiðsluveitandanum sem miðlari gætu þurft að greiða.
SKULDSETNING
Ferlið sem leyfir miðlara að hafa miklu meiri áhrif á markaði en sú upphæð sem hann eða hún lagði inn til að opna viðskipti, er kallað skuldsetning. Slíkar skuldsetningar auka mögulegan gróða miðlarans – en auka líka að sjálfsögðu hugsanlegt tap.
Upphæð skuldsetningar er sett fram sem hlutfall, til dæmis 50:1, 100:1, eða 500:1. Ef gert er ráð fyrir að miðlari eigi 1.000 $ inni á hans eða hennar viðskiptareikningi og er að miðla með miðastærðir 500.000 USD/JPY, mun sú skuldsetning jafnast á við 500:1.
Skuldsetningin í boði hjá HYCM fer eftir bæði reglugerðum og því umdæmi sem viðskiptareikningurinn tilheyrir.
Þar sem hann er undir eftirliti FCA fellur fyrirtækið undir evrópsku ESMA reglugerðina sem hefur nýlega takmarkað hámark skuldsetningar við 1:30 sem á sérstaklega við Forex reikninga.
Viðskiptavinir sem falla undir umdæmi evrópsku reglugerðarinnar verða að fara eftir þessari skuldsetningu. Hinsvegar er hámark skuldsetningarinnar sem HYCM býður 1:500, sem er því miður aðeins í boði fyrir kúnna sem eru með Dúbaí reikning.
BÓNUSAR
Forex miðlanir hneigjast til að laða að nýja miðlara með boðum um aðlaðandi innlagnarbónusa. Þetta getur verið hentugt, en það er mikilvægt að koma auga á hvað almennilegur bónus er.
Slíkur bónus er leið til umbuna miðlurum fyrir að velja ákveðna miðlun, því að um leið og reikningur er opnaður, mun miðlarinn hafa sama kostnað og hver annar.
Bónusinn er aðeins verðlaun fyrir val miðlarans sem gefur sumt af þessum kostnaði aftur til baka til miðlarans, um leið og hann hefur sannað sig sem virkur miðlari.
Það sem meira er, síðan 1. ágúst 2018 hefur Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) sett upp vernd fyrir miðlara fyrir markaðssetningu, dreifingu og sölu á CFD til einstaklingsmiðlara.
Þetta hindrar miðlanir í að beint eða óbeint bjóða smásölukúnna greiðslu, peninga eða ópeningaleg fríðindi í tengslum við markaðssetningu, dreifingu eða sölu á CFD, annarri en hagnaði af hverskyns CFD sem boðið er upp á.
Þetta þýðir að innlagnarbónus á ekki við fyrir smásölukúnna eins og er.
Ekkert kemur fram á vefsíðu HYCM hvort boðið sé upp á prufureikning.
Þú gætir einnig haft áhuga á HotForex Skoðun
VIÐSKIPTAVETTVANGAR, HUGBÚNAÐUR OG EIGINLEIKAR HANS
Forex miðlunarhugbúnaðurinn sem miðlunarfyrirtæki veitir sínum viðskiptavinum er kallaður vettvangur og er notaður til að framkvæma viðskipti þeirra.
Vettvangur getur verið fjölnota, sem þýðir að hann leyfir viðskiptavinum ekki aðeins að versla með forex, heldur einnig aðra eignaflokka á borð við CFD fyrir hlutabréf, hlutabréfavísitölur, verðmæta málma, og rafmyntir.
Ákvörðunin um hvaða vettvang ætti að velja mun fara eftir því hvað viðskiptavinurinn vill versla með, það mun því einnig vera eitt af því sem þarf að skoða þegar miðlun er valin.
HYCM býður hina þekktu og vinsælu MetaTrader4 og MetaTrader 5 sem sína viðskiptavettvanga.
MetaTrader4 gerir ráð fyrir miðlurum af öllum stigum og býður upp á:
- Þróaða tæknilega greiningu
- Sveigjanleg viðskiptakerfi
- Sérfræðiráðgjafa, og marga aðra eiginleika.
MetaTrader 5 er betrumbætta útgáfan af MT4 sem býður að auki upp á eftirfarandi:
- Aukatímaramma og þjónustur
- 21 mismunandi tímarammi
- 6 tegundir af fyrirmælum á bið
- Efnahagslegt dagatal sem er innbyggt
Báðir vettvangar eru tiltækir til niðurhals á borðtölvum, iOS, Android tækjum, sem tryggir að miðlarar geta hafið viðskipti hvar sem er í heiminum.
MARKAÐIR, VÖRUR OG GERNINGAR
Flestar miðlanir bjóða upp á einhver af eftirfarandi markaðsgerningum fyrir viðskipti:
Gjaldeyrisviðskipti:
Forex miðlun, einnig þekkt sem FX miðlun, snýst um gjaldeyrisskiptamarkaðinn þar sem einstaklingar, fyrirtæki og fjármálastofnanir skiptast á gjaldmiðlum á fljótandi gengi.
Vörur:
Eins og með gjaldeyrisskiptamarkaði, bjóða vörumarkaðir upp á öðruvísi fjárfestingartækifæri fyrir miðlara. Fjárfesting í samningsbundnum seljanlegum vörum er áreiðanleg leið til að draga úr áhættu á tímum verðbólgu eða efnahagsóvissu.
Vísitölur:
Eignir eða hlutabréfavísitölur eru alvöru vísitölur hlutabréfamarkaðsins sem mæla verðgildi ákveðins hluta af hlutabréfamarkaði. Þær geta staðið fyrir mengi stærstu fyrirtækja eins lands eða staðið fyrir einn ákveðinn hlutabréfamarkað.
Verðmætir málmar:
Viðskipti með gull og aðra verðmætir málma fela í sér hrávörur sem eru samningsbundnar, seljanlegar vörur.
Orka:
Óstöðugleiki orkuverðs vegna ástands í stjórnmálum eða umhverfi, framboðs og eftirspurnar, öfga í veðurfari og hnattræns hagvaxtar er dæmigerður eiginleiki þessarar vöru, sem gerir hana að öðrum vinsælum valkosti til að versla með.
HYCM býður miðlurum upp á þann valkost að miðla í 7 flokkum með meira en 100 eignir. Hún býður upp á miðlun með:
- Gjaldeyrisviðskipti
- Hlutabréf
- Vísitölur
- Rafmyntir
- Vörur
- ETF
ÖRYGGI OG REGLUGERÐIR
Eitt af því fyrsta sem hugsanlegur miðlari verður að finna út, er hvort að miðlun eins og HYCM sé örugg til að stunda viðskipti við. Einn af slíkum mælikvörðum á öryggi miðlunar er að finna út hvaða eftirlitsyfirvöld eru varðhundar gjörða hennar.
HYCM hefur góðan orðstír vegna móðurfélags síns og vegna þess að hún er undir eftirliti FCA, sem er ein strangasta eftirlitsstofnunin í Bretlandi.
Viðskiptavinir eru tryggðir fyrir nauðsynlegu öryggi og ströngustu reglugerðirnar tryggja að sjóðir viðskiptavina eru geymdir á aðskildum reikningum, sem hindrar HYCM frá því að nota sjóði í sinn rekstur.
Útibú HYCM á Kýpur, Dúbaí og Caymaneyjum eru einnig leyfileg og undir eftirliti viðeigandi eftirlitsyfirvalda.
Viðskiptavinir geta einnig fullvissað sig um tryggingu FSCS, ef sú staða kemur upp að HYCM þarf að lýsa yfir gjaldþroti, veitir FSCS bætur til viðskiptavina allt að 50.000 £.
HYCM býður miðlurum einnig upp á nýjustu tæknina og ítarlega ferla hvað varðar tölvuöryggi.
ÞJÓNUSTUVER
Væntanlegir miðlarar verða að vera vissir um að miðlunin sem þeir velja bjóði nauðsynlegan stuðning og hjálp hvenær sem þeir þurfa á henni að halda.
HYCM býður upp á þjónustu við viðskiptavini gegnum síma og tölvupóst. Hún er einnig tengd spjallvettvöngum á borð við Intercom, Facebook Messenger, Telegram, WhatsApp, Viber og Skype.
RANNSÓKNIR
Væntanlegir miðlarar ættu alltaf að rannsaka spámiðlun eins mikið og hægt er, áður en þeir byrja að nota hana.
Að miðla af öryggi og með árangri byggist að miklu leyti á þekkingu og skilningi á mörkuðum, því eru þau tækifæri til rannsókna sem miðlanir bjóða mikilvægur hluti af eiginleikum þeirra þegar rétta fyrirtækið til að stunda viðskipti með er valið.
HYCM býður upp á rannsóknartól á borð við aðgang að reiknivélum, efnahagslegt dagatal og markaðshorfur fyrir miðlara.
Reiknivélar innihalda pip, gjaldmiðla og mörk á meðan efnahagslega dagatalið leyfir miðlurum að halda yfirsýn yfir fréttir varðandi Forex ásamt skyldum viðburðum.
Markaðshorfur bjóða miðlurum upp á upplýsingar varðandi mikilvæga væntanlega viðburði, og tíu efstu hreyfingarnar varðandi markaðsgerninga.
Það er einnig athugasemdakerfi á síðunni fyrir markaðshorfur auk daglegs markaðsyfirlit og nýlegra frétta.
MENNTUN OG ÞJÁLFUN
Áður en miðlun er hafin, ættu væntanlegir viðskiptavinir HYCM að nýta sér allar mögulegar upplýsingar og hæfileika í miðlun sem þarf til að vegna vel í heimi forex og vöruviðskipta.
Ef sjálf vefsíða HYCM veitir ekki nægilegar upplýsingar, ættu miðlarar að skoða aðrar upplýsingaveitur og leiðir til að öðlast þá þekkingu.
HYCM gerir ríkulega ráð fyrir byrjendum í miðlun með fræðsluhluta og býður upp á eftirfarandi fræðsluefni:
- Forex fræðslu
- Vefnámskeið, og
- Námskeið
Fræðslutólin eru meðal annars myndbönd sem fara yfir efni á borð við:
- Veröld alþjóðaviðskipta
- Umsjón höfuðstóls
- Sálfræði varðandi miðlun
Ennfremur býður HYCM upp á byrjendanámskeið, fræðslu, viðskiptaáætlanir og rafbækur sem fara yfir þá eignaflokka sem miðlað er með á vettvanginum.
SAMANTEKT
Sem verðbréfamiðlun stendur HYCM uppúr meðal jafningja sinn virta og áreiðanlega orðstír á fjármálamarkaðnum.
Boðið er upp á faglega þjónustu fyrir reynda miðlara og atvinnumiðlara, en einnig er boðið upp á þjónustu fyrir byrjendur sem vilja læra meira um viðskipti.
HYCM býður upp á samkeppnishæf verðbil, fremur lágar eða engar þóknanir (miðað við þann reikning sem miðlarar nota) og innlagnarupphæðir eru fremur lágar. Fyrir utan það, er til úrval gerninga til að velja úr frá áreiðanlegum viðskiptavettvöngum.
HYCM VIÐ FYRSTU SÝN |
|
Nafn miðlunar | HYCM |
Höfuðstöðvar | London, Bretlandi |
Stofnunarár | 2016 |
Eftirlitsyfirvöld | FCA, CySEC, DFSA, CIMA |
Kúnnar frá Bandaríkjunum velkomnir | Nei |
Íslamskur reikningur (Skiptilaus) | Já |
Prufureikning | Já |
Stofnanareikningar | Já |
Stýrðir reikningar | Já |
Hámark skuldsetningar | 30:1 |
Lágmarksinnlögn | 100 $ |
Innlagnarmátar | Bankamillifærslur, Visa/Master Card, WebMoney, Neteller, Skrill Moneybookers |
Úttektarleiðir | Bankamillifærslur, Visa/Master Card, WebMoney, Neteller, Skrill Moneybookers |
Tegundir viðskiptavettvanga | MT4, MT5 |
Tungumál vettvangs | Enska, arabíska, sænska, pólska, þýska, franska, ítalska, spænska, rússneska, kínverska, víetnamska |
Samhæfi stýrikerfa | PC, vefur, snjallsímar, spjaldtölvur |
Tungumál þjónustuvers | Enska, arabíska, sænska, pólska, þýska, franska, ítalska, spænska, rússneska, kínverska, víetnamska |
Opnunartími þjónustuvers | 24/5 |
ALGENGAR SPURNINGAR
Hversu marga fjárgerninga get ég verslað með hjá HYCM?
HYCM býður miðlurum upp á þann valkost að miðla í 7 flokkum með meira en 100 eignir:
- Gjaldeyrisviðskipti
- Hlutabréf
- Vísitölur
- Rafmyntir
- Vörur
- ETF
Hvaða vettvanga styður HYCM?
HYCM býður upp á eftirfarandi vinsæla viðskiptavettvanga:
- MetaTrader4
- MetaTrader5
Býður HYMC upp á skuldsetningu?
Já.
HYCM býður upp á hámark skuldsetningar 1:30 fyrir lönd innan umdæmis Evrópu, og hámark skuldsetningar 1:500 fyrir kúnna sem eru með reikning í Dúbaí.
Hvaða verðbilum get ég átt von á hjá HYCM?
HYCM býður kúnnum upp á val á milli fastra og fljótandi verðbila, og hrárra verðbila með þóknun.
Innheimtir HYCM þóknanir?
HYCM innheimtir ekki þóknanir, en fær greiðslur gegnum tilboðið eða tilboðsverðbilið hvað varðar hvern fjárgerning, ásamt tegund reikningsins.
Er HYCM undir eftirliti?
Já, HYCM er stýrt af hinni mikilsvirtu FCA í Bretlandi sem og CySEC, DFSA, CIMA í öðrum umdæmum sínum.
Er mælt með HYCM sem gjaldeyrismiðlara fyrir sérfræðinga og byrjendur?
Já, HYCM býður upp á gott viðskiptaumhverfi fyrir allar tegundir miðlara, frá byrjendum til lengra kominna.
Hver er er heildareinkunn af 10 fyrir HYCM?
8/10
REIKNINGAR
Hver er munurinn á prufu og virkum viðskiptareikningi?
Prufureikningur er reikningur sem sumir viðskiptavettvangar bjóða upp á, sem er fjármagnaður með sýndarfé. Þetta leyfir væntanlegum miðlurum að prófa sig áfram með viðskiptavettvanginn og kynnast ýmsum eiginleikum hans áður en ákveðið er að setja upp alvöru reikning.
Þessir reikningar eru í boði hjá ýmsum viðskiptavettvöngum á netinu, þar á meðal vettvöngum fyrir viðskipti með hlutabréf, forex miðlunarvettvanga, vörumarkaði.
Prufureikningur er einnig mikið notaður af reyndari miðlurum sem vilja gera tilraunir með aðra eignaflokka. Til dæmis gæti miðlari haft reynslu í miðlun með hlutabréf en vilja byrja að fjárfesta í framvirkum viðskiptum, vörum eða gjaldmiðlum.
Að opna prufureikning er góður valkostur áður en virkur reikningur er opnaður þar sem þú getur miðlað með alvöru peninga í rauntíma.
Býður HYCM upp á prufureikning?
Já
Get ég breytt mínum prufureikningi í virkan viðskiptareikning hjá HYCM?
Já
Upp á hvaða virku viðskiptareikninga býður HYCM?
- Fastan: verðbil sem byrja frá 1,8 pip
- Klassískan: verðbil sem byrja frá 1,2 pip
- Hráan: verðbil sem byrja frá 0,2 pip
- Íslamskur reikningur: skiptigjaldslaus reikningur
Hvaða innlagnargjaldmiðlar eru í boði fyrir virkan viðskiptareikning?
- USD
- EUR
- GBP
- JPY
- CHF
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
Hver er lágmarksinnlögn hjá HYCM?
100 $
Hvernig framkvæmi ég innlögn og úttekt hjá HYCM?
HYCM býður upp á eftirfarandi vinsælar innlagnar- og úttektarleiðir:
- Bankamillifærslur
- Visa Master Card
- WebMoney
- Neteller
- Skrill Moneybookers
Innheimtir HYCM úttektargjöld?
Nei: gjöld frá fjármálastofnunum gætu átt við
Hvað tekur úttekt langan tíma?
- Bankamillifærslur – geta tekið allt að 1 – 5 virka daga
- Visa Mastercard – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- WebMoney – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- Neteller – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
- Skrill Moneybookers – vinnsla getur tekið allt að klukkutíma
FYRIRVARI
Miðlarar, hvort sem þeir eru byrjendur eða lengra komnir þurfa að viðurkenna og skilja að miðlun með CFD ásamt öðrum gerningum felur alltaf í sér mikla áhættu. þetta eru flóknar fjármálaafurðir sem miðlað er með lánsfé.
Miðlara hafa tækifæri á að hagnast, en þeir eiga það líka á hættu að tapa sínum höfuðstóli, jafnvel öllum, með miðlun fjármálagerninga.
Vörur og upplýsingar HYCM geta ekki þjónað sem hverskyns meðmæli eða ráð. Miðlarar eru hvattir til að leita ráðgjafar hjá þriðja aðila ef þeim finnst það nauðsynlegt áður en ákvörðun er tekin, samkvæmt rannsóknum.
Þú gætir einnig haft áhuga á House of Borse Skoðun