⚡ Versluðu gull með 1:2000 skiptimynt – Verslaðu núna

YFIRLIT YFIR DUKASCOPY SEM FOREX MIÐLUNARFYRIRTÆKI

YFIRLIT YFIR DUKASCOPY SEM FOREX MIÐLUNARFYRIRTÆKI

 

KYNNING

Samkvæmt nýlegum rannsóknum okkar, er Dukascopy forex miðlunarfyrirtæki í Sviss.

Gjaldeyrismiðlun veitir miðlurum aðgang að vettvöngum sem gerir þeim kleift að kaupa og selja erlenda gjaldmiðla.

Einnig er hægt að vísa til Forex miðlana sem smásölu forex miðlana eða miðlana í gjaldeyrisviðskiptum. Gjaldeyrismiðlarar í smásölu nota þessar miðlanir til að fá aðgang að gjaldeyrismarkaði sem er opinn allan sólarhringinn til að spá fyrir um gengi.

Forex þjónustur miðlana eru einnig veittar fyrir viðskiptavini stofnana og stórra fyrirtækja á borð við fjárfestingabanka.

🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir

Miðlari

Einkunn

Reglustofnanir

Vettvangar

Lágmarks-innborgun

Hámarks Vogun

Dulritun

Opinber síða

🥇

4.7/5

ASIC, FSA, CBI, BVI, FSCA, FRSA, CySEC, ISA, JFSA

MT4, MT5, Avatrade Social

USD 100

400:1

🥈

4.9/5

ASIC, CySEC, FSA, SCB

MT4, MT5, cTrader

USD 200

500:1

🥉

4.8/5

FSA, CySEC, FSCA, FSC

MT4, MT5

USD 1

3000:1

4

4.6/5

FSC, CMA

MT4, MT5, FXTM Trader

USD 200

2000:1

5

4.9/5

CySEC, FSCA, FCA, FSA, DFSA, CMA, St. Vincent & the Grenadine

MT4, MT5, HFM App, HFM Copy Trading

USD 0

2000:1

6

4.6/5

CySEC, MISA, FSCA

MT4, MT5, OctaTrader

USD 25

1:1000

7

4.9/5

ASIC, BaFin, CMA, CySEC, DFSA, FCA, SCB

MT4, MT5, cTrader, Tradingview, Pepperstone Platform

USD 10

400:1

8

4.5/5

FCA, SCB

MT4, MT5

USD 100

1:500

9

4.7/5

ASIC, FCA, CySEC, SCB

MT4, MT5, TradingView

USD 100

1:500

10

4.9/5

ASIC, CySEC, FSCA, FSA

MT4, MT5

USD 100

500:1

🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir

Miðlari

Lágmarks-innborgun

Hámarks Vogun

Opinber síða

🥇

USD 100

400:1

🥈

USD 200

500:1

🥉

USD 1

3000:1

4

USD 200

2000:1

6

USD 25

1000:1

8

USD 100

1:500

9

USD 100

1:500

10

USD 100

500:1

 

SAGA OG HÖFUÐSTÖÐVAR DUKASCOPY

Dukascopy er svissnesk forex og CFD miðlun sem staðsett er í Geneva og er dótturfélag Dukascopy Bank SA, sem er opinberlega skráður sem banki hjá yfirvöldum Swiss Financial Market (FINMA).

Dukascopy miðlunarfyrirtækið var aðeins stofnað árið 2004 í Geneva, Sviss, en Dukascopy Bank SA átti nú þegar rætur um 1990 og hefur víðtæka viðskiptahagsmuni.

Dukascopy hefur verið í viðskiptum síðan 2004 og býður bæði persónulega Forex miðlun og tvíundarreikninga og leggur kapp á öryggi sinna sjóða, hraðar framkvæmdir og engar verðstýringar.

Síðan 2006 hefur fyrirtækið rekið sinn Swiss FX Marketplace sem er ECN og hefur síðan stækkað á heimsvísu.

Dukascopy er með skrifstofur í Zurich, Riga, Kiev, Moskvu og Hong Kong, og er með yfir 200 manns á launaskrá. Árið 2015 eignaðist Dukascopy Alpari Japan og stýrir því frá Tokyo sem Dukascopy Japan Co.

Dótturfyrirtæki þess eru undir eftirlit fjármálaeftirlitsyfirvalda sinna landa og viðskiptaskilyrðin eru því mismunandi eftir því hjá hvaða einingu miðlari skráir sig hjá.

 

VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR

Í heimi forex miðlunarfyrirtækja skiptir það miklu máli fyrir orðstír fyrirtækisins að vera heiðrað með verðlaunum frá virtum samtökum eða útgáfum.

Dukascopy hefur sankað að sér eftirfarandi verðlaunum yfir sín ár í viðskiptum:

  • ForexBrokers Best Platform and Tools (2018)
  • ForexBroker Best Mobile Trading (2018)
  • China (Shenzhen) Forex Expo’s Best Forex Bank (2018)
  • London Forex Show’s Best Forex ECN/STP Broker (2018)
  • IAFT Awards’ Best Provider of Liquidity (2017)
  • China (Shenzhen) Forex Expo’s Best Global Professional Trading Platform (2016)

REIKNINGAR DUKASCOPY

Forex reikningur er viðskiptareikningur sem miðlari á hjá fyrirtæki eins og Dukascopy sem er fyrst og fremst stofnaður til að versla með gjaldmiðla.

Vanalega fer fjöldi og tegund reikninga sem miðlari getur opnað hjá miðlunarfyrirtæki eftir því í hvaða landi miðlunin vinnur, búsetulandi miðlara og reglugerðaryfirvöldum þess lögsagnarumdæmis sem miðlunin starfar í.

 

GERÐIR REIKNINGA OG EIGINLEIKAR

Reikningar Dukascopy eru mismunandi eftir því hvort handhafinn er einstaklingur, tveir einstaklingar (sameiginlegur reikningur) eða fyrirtæki.

Hinir mismunandi viðskiptareikningar eru meðal annars hefðbundinn virkur viðskiptareikningur, Forex/CFD prufureikningur, tvíundarprufureikningur og MCA núverandi reikningur.

Miðlarar geta opna ECN reikning hjá Dukascopy Evrópu eða Dukascopy Bank í Sviss.

Fyrir utan reglugerðarumdæmi er aðalmunurinn á milli þessa tveggja eininga að lágmarksinnlögn fyrir ESB eininguna er aðeins 100 $ á meðan einingin í Sviss fer fram á 5.000 $ fyrir utan íbúa Sviss, fyrir þá er hún aðeins 1.000 $.

 

INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR

Viðskiptavinir Dukascopy geta fjármagnar nýja reikninga með fjöld gjaldmiðla með bankamillifærslu, debet- eða kreditkortum, bankaábyrgðum, Neteller, Skrill og rafmyntum.

Dukascopy innheimtir ekki fyrir bankamillifærslur sem koma inn, en innheimtir úttektargjald samkvæmt gjaldmiðli.

Lágmarksinnlagnarupphæðir eru mismunandi miðað við tegund reiknings en byrja frá 100 USD (Dukascopy Europe) og frá 1.000 USD (Dukascopy Sviss).

Þar sem innlagnir viðskiptavina allt að 100.000 CHF eru verndaðar af reglugerð ríkisins, leyfir Dukascopy viðskiptavinum að geyma sína innlögn hjá þeirra eiginn banka ef hún er meiri en 100.000 USD. Dukascopy innheimtir hinsvegar 1,25% árgjald fyrir að nota þennan valkost.

Úttektarleiðir eru þær sömu og innlagnarleiðir. Millifærslugjöld gætu verið innheimt að samstarfsbönkum sem eru mismunandi eftir gjaldmiðli.

 

KOSTNAÐUR OG GJÖLD, ÞÓKNANIR OG VERÐBIL

Viðskiptakostnaður fer eftir mismunandi þáttum eins og þóknunum, verðbilum og mörkum.

Verðbil gjaldmiðlapars er mismunurinn á milli tilboðs og ásetts verðs. Pip stendur fyrir þá minnstu breytingu sem gengi getur færst til. Eitt pip er 0,01 fyrir gjaldmiðlapör með JPY sem bundin gjaldmiðil og 0,0001 fyrir öll önnur pör.

Mörk er sú upphæð fés sem þarf að vera inni á þínum reikning til geta opnað stöðu. Mörk eru reiknuð miðað við núverandi verð á grungjaldmiðlinum á móti USD, stærð (magni) stöðunnar og skuldsetningunni sem notuð fyrir þinn viðskiptareikning.

Þóknanir eru þau gjöld sem fjárfestingarmiðlun innheimtir af miðlara fyrir að framkvæma viðskipti fyrir hans hönd. Stig skuldbindinga eru mismunandi eftir miðlunum og fer einnig eftir eigninni sem miðlað er með og þeirri þjónustu sem miðlunin veitir.

Miðlanir sem sjá aðeins um framkvæmdina, það er þær miðlanir sem sjá ekki um hverskyns fjárfestingarráðgjöf og gefa miðlurum algjörlega frjálsar hendur um hvernig þeir versla á mörkuðum, hafa yfirleitt lægri þóknanir.

Þó miðlun með afleiðusamningar (CFD) sé form af afleiddum viðskiptum sem gerir miðlurum kleift að spá fyrir um hækkun eða lækkun verðs á hraðvirkum alþjóðlegum fjármálamörkuðum, þarf að greiða þóknun fyrir að miðla með bréfin.

CFD viðskipti á öðrum mörkuðum bera engar þóknanir en auka verðbil markaðsverðsins fyrir ákveðinn gerning.

Þóknanir Dukascopy eru sanngjarnar, byrja frá 3,50 $ fyrir hverjar 100.000 lotur hver hlið fyrir minnstu reikningana. Þóknanir lækka fyrir stærri reikningsstærðir eða meira umfang viðskipta.

Reikningsinnistæður yfir 25.000 USD eru innheimtar 2,5$ hver lota hver hlið og reikningsinnistæður yfir 50.000 USD eru innheimtar 1,80 $ hver lota hver hlið. Fyrir mjög stóra reikninga, stærri en 10.000.000 USD, lækka þóknanirnar niður í 1,00 $ hver lota hver hlið.

 

SKULDSETNING

Ferlið sem leyfir miðlara að hafa miklu meiri áhrif á markaði en sú upphæð sem hann eða hún lagði inn til að opna viðskipti, er kallað skuldsetning. Slíkar skuldsetningar auka mögulegan gróða miðlarans – en auka líka að sjálfsögðu hugsanlegt tap.

Upphæð skuldsetningar er sett fram sem hlutfall, til dæmis 50:1, 100:1, eða 500:1. Ef gert er ráð fyrir að miðlari eigi 1.000 $ inni á hans eða hennar viðskiptareikningi og er að miðla með miðastærðir 500.000 USD/JPY, mun sú skuldsetning jafnast á við 500:1.

Samkvæmt sínum skuldbindingum varðandi reglugerðarkröfur, er hin hefðbundna leyfða skuldsetning sem FINMA setur fyrir Dukascopy 1:30 fyrir Forex gerninga.

Dótturfyrirtækið sem er Lettlandi er einnig háð ESB reglugerðum, sem setja 30:1 þak á skuldsetningu, en það er enn hægt fyrir miðlara í ESB að skrá sig beint hjá skrifstofunni í Sviss, og komast þannig framhjá þessum reglum.

 

BÓNUSAR

Forex miðlanir hneigjast til að laða að nýja miðlara með boðum um aðlaðandi innlagnarbónusa. Þetta getur verið hentugs, en það er mikilvægt að koma auga á hvað almennilegur bónus er.

Slíkur bónus er leið til umbuna miðlurum fyrir að velja ákveðna miðlun, því að um leið og reikningur er opnaður, mun miðlarinn hafa sama kostnað og hver annar.

Bónusinn er aðeins verðlaun fyrir val miðlarans sem gefur sumt af þessum kostnaði aftur til baka til miðlarans, um leið og hann hefur sannað sig sem virkur miðlari.

Það sem meira er, síðan 1. ágúst 2018 hefur Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) sett upp vernd fyrir miðlara fyrir markaðssetningu, dreifingu og sölu á CFD til einstaklingsmiðlara.

Þetta hindrar miðlanir í að beint eða óbeint bjóða smásölukúnna greiðslu, peninga eða ópeningaleg fríðindi í tengslum við markaðssetningu, dreifingu eða sölu á CFD, annarri en hagnaði af hverskyns CFD sem boðið er upp á.

 

Þú gætir einnig haft áhuga á CMC Markets Skoðun

 

VIÐSKIPTAVETTVANGAR, HUGBÚNAÐUR OG EIGINLEIKAR HANS

Forex miðlunarhugbúnaðurinn sem miðlunarfyrirtæki veitir sínum viðskiptavinum er kallaður vettvangur og er notaður til að framkvæma viðskipti þeirra.

Vettvangur getur verið fjölnota, sem þýðir að hann leyfir viðskiptavinum ekki aðeins að versla með forex, heldur einnig aðra eignaflokka á borð við CFD fyrir hlutabréf, hlutabréfavísitölur, verðmæta málma, og rafmyntir.

Ákvörðunin um hvaða vettvang ætti að velja mun fara eftir því hvað viðskiptavinurinn vill versla með, það mun því einnig vera eitt af því sem þarf að skoða þegar miðlun er valin.

Viðskiptavettvangar Dukascopy veita aðgang að Svissneska Forex markaðnum (SWFX). Hinir mismunandi vettvangar styðja allir fjölbreytt úrval viðskiptafyrirmæla:

Java Platform

Þessi vettvangur er hannaður fyrir handvirka miðlun. Hann sýnir allar nauðsynlegar viðskiptaupplýsingar á sama tíma, án þess að þurfa að flakka á milli glugga.

Miðlarar geta hagnast á ýmsum tæknilegum greiningum, tólum til markaðsrannsókna og tafarlausum samskiptum við stuðningsteymi.

JForex platform

Mælt er með þessum vettvangi fyrir handvirka og sjálfvirka miðlun og er fullkominn fyrir þá miðlara sem hafa áhuga á sjálfvirkum viðskiptum og því að prófa nýjar viðskiptaáætlanir.

Fyrirtækið býður líka upp á viðskiptavettvang á vefnum sem tafarlausum aðgangi að markaði og farsímavettvöngum fyrir snjallsíma.

Web Binary Trader er viðskiptavettvangurinn fyrir miðlun tvíundarvals með eiginleikum sem leyfa örugga miðlun á netinu með einum smelli, fyrir óendanlegan fjölda af reikningum.

Dukascopy býður ekki beinan aðgang að MetaTrader4 vettvanginum en það leyfir tengingu við hann gegnum þriðja aðila veitendur.

 

MARKAÐIR, VÖRUR OG GERNINGAR

Flestar miðlanir bjóða upp á einhver af eftirfarandi markaðsgerningum fyrir viðskipti:

Gjaldeyrisviðskipti:

Forex miðlun, einnig þekkt sem FX miðlun, snýst um gjaldeyrisskiptamarkaðinn þar sem einstaklingar, fyrirtæki og fjármálastofnanir skiptast á gjaldmiðlum á fljótandi gengi.

Vörur:

Eins og með gjaldeyrisskiptamarkaði, bjóða vörumarkaðir upp á öðruvísi fjárfestingartækifæri fyrir miðlara. Fjárfesting í samningsbundum seljanlegum vörum er áreiðanleg leið til að draga úr áhættu á tímum verðbólgu eða efnahagsóvissu.

Vísitölur:

Eignir eða hlutabréfavísitölur eru alvöru vísitölur hlutabréfamarkaðsins sem mæla verðgildi ákveðins hluta af hlutabréfamarkaði. Þær geta staðið fyrir mengi stærstu fyrirtækja eins lands eða staðið fyrir einn ákveðinn hlutabréfamarkað.

Verðmætir málmar:

Viðskipti með gull og aðra verðmætir málma fela í sér hrávörur sem eru samningsbundnar, seljanlegar vörur.

Orka:

Óstöðugleiki orkuverðs vegna ástands í stjórnmálum eða umhverfi, framboðs og eftirspurnar, öfga í veðurfari og hnattræns hagvaxtar er dæmigerður eiginleiki þessarar vöru, sem gerir hana að öðrum vinsælum valkosti til að versla með.

Rafmyntir:

Bitcoin (BTC) er rafmynt með mestu markaðsfjármögnuna og verðgildi síðan hún var stofnuð árið 2008. Hún ræður um 50% af öllu markaðsvirði rafmynta.

Litecoin (LTC) er svipuð Bitcoin en hefur öðruvísi kjör og sveigjanleika. Litecoin er önnur mjög vinsæl rafmynt og LTCUSD er afleggjari frá Bitcoin (BTCUSD), afrituð frá kóða Bitcoin og með smávægilegum breytingum, sett af stað sem nýtt verkefni.

Ripple (RPL) er vinsælt meðal stórra banka með Ripple netkerfinu og næstu kynslóðar greiðsluuppgjörskerfi í rauntíma. Það leyfir tafarlausar millifærslur sjóða yfir landamæri með mjög lágum tilkostnaði.

Ethereum (ETH) er næststærsta rafmyntin á eftir Bitcoin og leyfir hönnuðum að búa til snjallsamninga á vettvangi.

Bitcoin Cash (BCH) var búin til úr Bitcoin „hard fork“ aðgerð árið 2017 og er ný útgáfa af bitakeðjunni með öðruvísi reglum.

Dukascopy býður í heildina 653 viðskiptagerninga yfir fjölmarga markaði með forex og CFD miðlurum.

Dukascopy býður einnig upp á miðlun með rafmynt með CFD fyrir merkilegar rafmyntareignir, og hina raunverulegu undirliggjandi (ekki CFD) á sínum eigin settu rafmyntum.

Fyrir utan forex, býður Dukascopy upp á miðlun með vísitölur, málma, hlutabréf, rafmyntir og tvíundarval. Boðið er upp á:

  • Gjaldmiðlapör byggð á aðal og minni heimsgjaldmiðlum
  • Tvö rafmyntarpör byggð á Bitcoin og Ethereum
  • 18 vísitölu CFD byggða á körfum af blöndu traustra hlutabréfa og vísitölu bandaríkjadollars
  • Þrjá málma CFD byggða á gulli, silfri og kopar
  • Fjóra orku CFD byggða á hráolíu (WTI, Brent), gasolíu og náttúrulegu gasi
  • Tvo skuldabréfa CFD byggða á breskum og þýskum ríkisskuldabréfum, fimm mjúka CFD byggða á kaffi, kakói, sykri, bómull, appelsínusafa
  • 500+ hlutabréfa CFD byggða á hlutabréfum bandarískra, breskra og evrópska fyrirtækja og
  • 40+ ETF CFD byggða á sjóðum á verðbréfamarkaði sem innihalda ýmsar seljanlegar eignir.

 

ÖRYGGI OG REGLUGERÐIR

Eitt af því fyrsta sem hugsanlegur miðlari verður að finna út, er hvort að miðlun eins og Dukascopy sé örugg til að stunda viðskipti við. Einn af slíkum mælikvörðum á öryggi miðlunar er að finna út hvaða eftirlitsyfirvöld eru varðhundar gjörða hennar.

Dukascopy er undir eftirliti eins og banki og verðbréfasali af Swiss Financial Market Supervisory Authority FINMA og er sem banki einnig háð strangari reglum en forex miðlanir í öðrum löglegum umdæmum.

Samstarfsaðili Dukascopy í Japan er einnig undir eftirliti Financial Market Supervisory Authority (FINMA), Financial Services Agency of Japan (JFSA), Financial and Capital Market Commission (FCMC).

Allar forex miðlanir í Sviss þurf að vera með leyfi eins og bankar. Dukascopy heldur sínum höfuðstóli í samræmi við reglugerðir FINMA og innistæður viðskiptavina eru verndaðar af Svissnesku ríkisstjórninni, ef til gjaldþrots kemur.

Þessi vernd nær yfir alla viðskiptavini Dukascopy, sama hvar þeir búa í Sviss og innlagnir í hvaða gjaldeyri sem er.

Aðalfjárhæfisveitendur Dukascopy eru meðal annars Barclays, Currenex, Deutsche Bank, JP Morgan, Goldman Sachs, Citibank, HSBC Bank, og viðskiptavinir taka þátt í ECN fyrirtækisins, „Swiss FX Marketplace“.

 

ÞJÓNUSTUVER

Væntanlegir miðlarar verða að vera vissir um að miðlunin sem þeir velja bjóði nauðsynlegan stuðning og hjálp hvenær sem þeir þurfa á henni að halda.

Dukascopy býður upp á góða þjónustu við viðskiptavini sem hægt er að nálgast gegnum tölvupóst og síma sex daga vikunnar.

Stuðningur gegnum spjall er tiltækur á vinnutíma og alþjóðlegir notendur geta líka haft samband við fyrirtækið gegnum Skype í staðinn fyrir símtöl.

Við viðskiptavinir geta beðið um svarhringingu gegnum heimasíðu fyrirtækisins og munu fá símtal frá þjónustudeild Dukascopy.

 

RANNSÓKNIR

Væntanlegir miðlarar ættu alltaf að rannsaka spámiðlun eins mikið og hægt er, áður en þeir byrja að nota hana.

Að miðla af öryggi og með árangri byggist að miklu leyti á þekkingu og skilningi á mörkuðum, því eru þau tækifæri til rannsókna sem miðlanir bjóða mikilvægur hluti af eiginleikum þeirra þegar rétta fyrirtækið til að stunda viðskipti með er valið.

Dukascopy býður upp á nægilegar markaðsupplýsingar fyrir nákvæma ákvarðanatöku. Þetta er gert á formi uppfærðra efnahagsfrétta, línurita, miðlunartákna, tæknilegra vísa reiknivéla fyrir forex miðlun.

Rannsóknartól eru einnig streymandi markaðsfréttir frá Reuters og MarketPulse, vísa um viðhorf til markaðar, virkt efnahagslegt dagatal, tæknileg mynstursgreining og kortagerð.

 

MENNTUN OG ÞJÁLFUN

Áður en verslun er hafin, ættu væntanlegir viðskiptavinir Dukascopy að nýta sér allar mögulegar upplýsingar og hæfileika í miðlun sem þarf til að vegna vel í heimi forex og vöruviðskipta.

Ef vefsíða Dukascopy veitir ekki nægilegar upplýsingar, ættu miðlarar að skoða aðrar upplýsingaveitur og leiðir til að öðlast færni og þekkingu.

Dukascopy býður fræðslumyndbönd sem útskýra ýmsar hliðar viðskiptavettvanga sinna, vefnámskeið í beinni eru í boði og mörgum tungumálum og námskeið eru stundum haldin í mismunandi heimshlutum.

Dukascopy er með sína eigin sjónvarpsstöð með um 20 mismunandi stöðvum á nokkrum tungumálum með áhugaverðu efni, þar á meðal Market Glance, Building Blocks, Crash Dummy Dollar og fleiri.

 

SAMANTEKT

Dukascopy á skilið að vera prófað að væntanlegum miðlurum, vitandi að það býður upp á fjölmarga eiginleika sem eru oft ekki í boði hjá neinni annarri forex eða tvíundarvals miðlunum.

Nýir miðlarar munu finna mismunandi eiginleika í boði handhæga á meðan bæði reyndir og nýir ættu ekki að vera í neinum vandræðum með að venjast þeim. Allar upplýsingar eru tiltækar á mörgum mismunandi tungumálum og allar gerðir miðlunar eru leyfðar, þar á meðal snoðun.

Dukascopy starfar í ströngu reglugerðarumhverfi og er vel sett, með innistæður viðskiptavina verndaðar af svissneskri bankareglugerð.

 

DUKASCOPE VIÐ FYRSTU SÝN

Nafn miðlunar Dukascopy
Höfuðstöðvar Geneva, Sviss
Stofnunarár 2004
Eftirlitsyfirvöld Financial Market Supervisory Authority (FINMA), Financial Services Agency of Japan (JFSA), Financial and Capital Market Commission (FCMC).
Lönd sem eru ekki samþykkt fyrir viðskipti Belgía, Kanada, Ísrael, Bandaríkin
Íslamskur reikningur (Skiptilaus) Nei
Prufureikningur
Stofnanareikningar
Stýrðir reikningar
Hámark skuldsetningar 200:1
Lágmarksinnlögn 100 USD
Innlagnarmátar Bankamillifærslur, VISA, bankaábyrgðir, Maestro, Neteller, aðrar rafmyntir, Skrill
Úttektarleiðir Bankamillifærslur, VISA, bankaábyrgðir, Maestro, Neteller, aðrar rafmyntir, Skrill
Tegundir viðskiptavettvanga
  • MetaTrader4
  • JForex fyrir borðtölvur,
  • JForex Web,
  • iOS og Android vettvangar
Samhæfi stýrikerfa Vettvangur fyrir borðtölvur (Windows), (Mac),

Vettvangur fyrir vef

Miðlun gegnum farsíma: Android, iOS

Seljanlegar eignir Gjaldmiðlar: (40+)

Rafmyntir: (2) Bitcoin, Ethereum

CFD: (605+) Gull, silfur, vísitölur hlutabréfa, skuldabréf, olía, aðrar vörur

Tungumál studd á vefsíðu Tólf tungumál, þar á meðal enska, þýska, spænska, pólska, rússneska, ítalska, kínverska og fleiri
Tungumál þjónustuvers Sextán mismunandi tungumál, þar á meðal enska, þýska, spænska, pólska, rússneska, ítalska, kínverska og fleiri
Opnunartími þjónustuvers Allan sólarhringinn, 6 daga vikunnar

 

ALGENGAR SPURNINGAR

VIÐSKIPTAUMHVERFI

Hversu marga fjárgerninga get ég verslað með hjá Dukascopy?

Þú getur miðlar með nokkra mismunandi gerninga hjá Dukascopy, sem eru meðal annars eftirfarandi:

  • Gjaldmiðlar: (40+)
  • Rafmyntir: (2) Bitcoin, Ethereum
  • CFD: (605+) Gull, silfur, vísitölur hlutabréfa, skuldabréf, olía, aðrar vörur.

Hvaða vettvanga styður Dukascopy?

Dukascopy býður upp á eftirfarandi vinsæla viðskiptavettvanga:

  • MetaTrader4
  • JForex fyrir borðtölvur,
  • JForex Web,
  • iOS og Android vettvangar

Býður Dukascopy upp á skuldsetningu?

Já, Dukascopy býður upp á skuldsetningu að hámarki 1: 200

Hvaða verðbilum get ég átt von á hjá Dukascopy?

Dukascopy býður upp á venjuleg 0,30 pip verðbil fyrir EUR/USD fyrir bandarísku viðskiptalotuna yfir Q3 2019 ásamt sjálfgefnum 0,70 pip þóknunartaxta hver umferð.

Ef ítaratriði á vefsíðunni eru ekki skiljanleg, er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá þjónustuverinu.

Innheimtir Dukascopy umboðslaun?

Miðað við þær Dukascopy Bank SA þjónustur sem viðskiptavinurinn notar, gætu ýmsar þóknanir átt við. Frekari upplýsingar um þóknanir má finna hjá þjónustu stuðningsteymisins.

Er Dukascopy undir eftirliti?

Já, Dukascopy er undir eftirliti Financial Market Supervisory Authority (FINMA), Financial Services Agency of Japan (JFSA), Financial and Capital Market Commission (FCMC).

Er mælt með Dukascopy sem gjaldeyrismiðlun fyrir sérfræðinga og byrjendur?

Dukascopy býður upp á gott viðskiptaumhverfi fyrir allar tegundir fjárfesta.

Hver er er heildareinkunn af 10 fyrir Dukascopy?

8/10

REIKNINGAR

Hver er munurinn á prufu og virkum viðskiptareikningi?

Miðlunarfyrirtæki bjóða upp prufureikning sem er fjármagnaður með sýndarpeningum og gerir væntanlegum viðskiptavinum kleift að prófa sig áfram með viðskiptavettvang fyrirtækisins og eiginleika hans, áður en alvöru reikningur er settur upp sem er fjármagnaður með alvöru fé kúnnans.

Býður Dukascopy upp á prufureikning?

Get ég breytt mínum prufureikningi í virkan viðskiptareikning hjá Dukascopy?

Ekki ljóst miðað við upplýsingarnar á heimasíðu fyrirtækisins.

Upp á hvaða virku viðskiptareikninga býður Dukascopy?

  • Forex ECN reikninga
  • CFD viðskiptareikninga

Hvaða innlagnargjaldmiðlar eru í boði fyrir virkan viðskiptareikning?

USD, CHF, EUR, GBP, CAD, JPY, SGD, PLN, AUD, HKD, DKK, MXN, NOK, NZD, RUB, SEK, TRY, ZAR, XAU, CNH, CZK, HUF, ILS, RON

INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR

Hver er lágmarksinnlögn hjá Dukascopy?

100 $

Hvernig framkvæmi ég innlögn og úttekt hjá Dukascopy?

Dukascopy býður upp á eftirfarandi innlagnar- og úttektarleiðir:

  • Bankamillifærslur
  • VISA
  • Bankaábyrgðir
  • Maestro
  • Neteller
  • Rafmyntir
  • Skrill

Yfirleitt þarf að nota sömu aðferð og var notuð til að leggja inn á reikning til að að taka út fé, sem verður aðeins lagt inn á reikninga með sama nafni og viðskiptareikningurinn.

Innheimtir Dukascopy úttektargjöld?

Nei, en gjöld frá fjármálastofnunum gætu átt við

Hvað tekur úttekt langan tíma?

Úttektir með ákveðnum leiðum gætu verið framkvæmdar innan eins dag en miðað við bankaþjónustur gæti það tekið nokkra daga fyrir peningana að verða tiltæka.

 

FYRIRVARI

Dukascopy varar alla væntanlega miðlara við því að viðskipti með Forex og CFD fela alltaf í sér mikla áhættu og gætu ekki hentað öllum fjárfestum.

Áður en viðskiptavinir ákveða að miðla með þær vörur sem Dukascopy býður upp á, er þeim ráðlagt að íhuga vandlega fjárfestingarmarkmið sín, fjárhagsstöðu, þarfir og eigin reynslu áður en þeir fjárfesta með peningum sem þeir hafa ekki efni á að tapa.

Þegar miðlarar nota lánareikninga Dukascopy, ættu þeir að viðhalda nægilegu svigrúmi til að viðhalda stöðum sínum, þar sem miðlun með Forex/CFD og valrétti á lánsfé felur í sér mikla áhættu.

Að nota hærri skuldsetningu en nauðsynlegt er getur unnið á móti miðlaranum sem og með honum. Það er alltaf möguleiki á að þú gætir tapað hluta af eða allri þinni upphaflegu fjárfestingu.

Þó Dukascopy geri vanalega allt sem hægt er til að klára viðskipti á því verði sem beðið var um, minnkar miðlun á netinu ekki endilega áhættuna sem tengist gjaldmiðlaviðskiptum, því eru tilboð og viðskipti vanalega háð þeim skilmálum og skilyrðum sem finna má í Samningnum við viðskiptavininn.

Nýleg rannsókn okkar sýnir fram á að væntanlegir miðlarar ættu fyrst að kynna sér allar þær áhættur sem tengjast miðlun með lánsfé og fá ráð frá sjálfstæðum fjármálaráðgjafa ef þeir eru í einhverjum vafa.

 

Þú gætir einnig haft áhuga á City Index Skoðun

Table of Contents

Fáðu 20% bónus við fyrstu innborgun