YFIRLIT YFIR CITY INDEX SEM FOREX MIÐLUNARFYRIRTÆKI
KYNNING
Samkvæmt okkar nýjustu rannsókn, er City Index forex miðlunarfyrirtæki sem er staðsett í Bretlandi.
Gjaldeyrismiðlun er fyrirtæki sem veitir miðlurum aðgang að vettvangi sem gerir þeim kleift að kaupa og selja erlenda gjaldmiðla.
Einnig er hægt að vísa til Forex miðlana sem smásölu forex miðlana eða miðlana í gjaldeyrisviðskiptum. Gjaldeyrismiðlarar í smásölu nota þessar miðlanir til að fá aðgang að gjaldeyrismarkaði sem er opinn allan sólarhringinn til að spá fyrir um gengi.
Forex þjónustur miðlana eru einnig veittar fyrir viðskiptavini stofnana og stórra fyrirtækja á borð við fjárfestingabanka.
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Einkunn
Reglustofnanir
Vettvangar
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Dulritun
Opinber síða
🥇
4.7/5
ASIC, FSA, CBI, BVI, FSCA, FRSA, CySEC, ISA, JFSA
MT4, MT5, Avatrade Social
USD 100
400:1
Já
5
4.9/5
CySEC, FSCA, FCA, FSA, DFSA, CMA, St. Vincent & the Grenadine
MT4, MT5, HFM App, HFM Copy Trading
USD 0
2000:1
Já
7
4.9/5
ASIC, BaFin, CMA, CySEC, DFSA, FCA, SCB
MT4, MT5, cTrader, Tradingview, Pepperstone Platform
USD 10
400:1
Já
🏆 10 Bestu Metnu Gjaldeyrismiðlararnir
Miðlari
Lágmarks-innborgun
Hámarks Vogun
Opinber síða
SAGA OG HÖFUÐSTÖÐVAR CITY INDEX
City Index er viðskiptaheiti GAIN Capital UK Limited. GAIN Capital eignaðist City Index árið 2014.
City Index er alþjóðlegur veitandi verðbilsveðmála, FX og CFD viðskipta með höfuðstöðvar í London. City Index var stofnað árið 1983 og hefur verið treyst af miðlurum fyrir hraða, áreiðanlega framkvæmd síðan frá stofnun þess fyrir 35 árum.
GAIN Capital UK Ltd er skráð í Englandi og Wales, og er því heimilað og undir eftirliti Financial Conduct Authority (FCA) skráningarnúmer: 113942. VSK númer: 524837435.
GAIN Capital er skráð í Verðbréfaþinginu í New York og er einnig undir eftirliti fjármálayfirvalda í hæsta gæðaflokki, svo sem Australian Securities and Investments Commission (ASIC) og Monetary Authority of Singapore (MAS).
City Index gefur viðskiptavinum aðgang að miklu úrvali af alþjóðlegum mörkuðum með meira en 12.000 til að velja um yfir Forex, vísitölur, hlutabréf og vörur.
Fyrirtækið veitir ennfremur leiðandi þjónustu á markaði byggða á sanngjörnu og gegnsæju verði og víðtækum stuðningi við viðskiptavini.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
Í heimi forex miðlunarfyrirtækja skiptir það miklu máli fyrir orðstír fyrirtækisins að vera heiðrað með verðlaunum frá virtum samtökum eða útgáfum.
City Index hefur sankað að sér eftirfarandi verðlaunum yfir sín ár í þjónustu við miðlara:
- Árið 2018 voru þau útnefnd sem „Best CFD Provider“, „Best Mobile Application“ og „Best Cryptocurrency Trading Platform“ á Online Personal Wealth Awards 2018.
- Árið 2017 voru þau heiðruð fyrir „Best Spread Betting Service“ af Shares Magazine og árið 2016 sem „Best CFD Provider“ af UK Online Personal Wealth.
- Árið 2015 hlaut City Index viðurkenningu sem „Best Forex Platform“ á UK Forex Awards og síðan voru þau lofuð fyrir „Best Education and Resources“ á UK Online Personal Wealth Awards árið 2014, auk „Best Forex Provider of the Year“ af UK Forex.
REIKNINGAR CITY INDEX
Forex reikningur er viðskiptareikningur sem miðlari á hjá fyrirtæki eins og City Index sem er fyrst og fremst stofnaður til að versla með gjaldmiðla.
Vanalega fer fjöldi og tegund reikninga sem miðlari getur opnað hjá miðlunarfyrirtæki eftir því í hvaða landi miðlunin vinnur, búsetulandi miðlara og reglugerðaryfirvöldum þess lögsagnarumdæmis sem miðlunin starfar í.
GERÐIR REIKNINGA OG EIGINLEIKAR
City Index býður upp á hefðbundinn viðskiptareikning og tvær gerðir prufureikninga, einn venjulegan prufureikning og einn fyrir MetaTrader4 (MT4) vettvanginn.
Miðlarar geta notað báða prufureikninga í allt að tólf vikur. City Index prufureikningurinn heimilar 2.500 £ sýndarinnistæðu og gefur fullan aðgang að tólum viðskiptavettvangsins.
MT4 prufureikningurinn er með 10.000 £ sýndarinnistæðu og gefur fullan aðgang að forex markaðinum.
Hægt er að opna hefðbundinn City Index reikning með að lágmarki 100 £ innlögn, en miðlarar fá aðgang að VIP reikningnum aðeins með boði.
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
Miðlarar geta lagt inn á sína reikninga á mismunandi vegu.
Þeir möguleikar sem eru í boði til að leggja inn og taka út eru meðal annars debetkort – Visa eða MasterCard, Maestro og Electron kreditkort, og bankamillifærslur. Allar þrjár leiðirnar eru ókeypis.
City Index leyfir ekki að Citibank kort séu notuð til að fjármagna reikninga sem eru í eigu hverskyns veitenda veðmálsverðbila, miðlarar sem vilja fjármagna frá Citibank reikningi verða að gera það með bankamillifærslu.
City Index leyfir heldur ekki greiðslur frá þriðja aðila eða greiðslur í reiðufé beint inn á þeirra bankareikning. Ferlið við að leggja fé inn á reikning er hinsvegar einfalt og fljótlegt.
Miðlarar geta nýtt sér innlagnarhlekk á aðalvettvanginum og þurfa aðeins að fylla út nauðsynlegar upplýsingar.
Lágmarksinnlögn sem þarf er 100 £, en City Index leggur til að miðlara leggi meira inn, nægilegt til að gera miðlaranum kleift að standast hreyfingar markaðsins.
Lágmarks úttektarupphæð af City Index reikningi er 100 £ eða tiltæk innistæða á reikningi, hvort sem er lægst. Hámarksupphæð sem miðlari getur tekið út í einni millifærslu er 20.000 £.
Ef að miðlari tekur út á netinu með kreditkorti, er hámarksúttekt sem leyfð er, 20.000 £ á sólarhring. Ekki er innheimt fyrir úttektir, nema þær þarfnist CHAPS greiðslu, en í því tilviki eru 25 £ innheimt fyrir greiðslur lægri en 5.000 £.
City Index verður að millifæra sjóðina aftur á sama uppruna og þú notaðir til að leggja inn á reikninginn til að fara eftir reglugerðum. Reikningurinn verður einnig að bera sama nafn og reikningurinn sem er geymdur hjá City Index.
Kortaúttektir hjá City Index geta tekið þrjá til fimm virka daga áður en sjóðirnir birtast, á meðan staðbundnar bankamillifærslur taka einn til tvo daga áður sjóðir birtast.
KOSTNAÐUR OG GJÖLD, ÞÓKNANIR OG VERÐBIL
Viðskiptakostnaður fer eftir mismunandi þáttum eins og þóknunum, verðbilum og mörkum.
Verðbil gjaldmiðlapars er mismunurinn á milli tilboðs og ásetts verðs. Pip stendur fyrir þá minnstu breytingu sem gengi getur færst til. Eitt pip er 0,01 fyrir gjaldmiðlapör með JPY sem bundin gjaldmiðil og 0,0001 fyrir öll önnur pör.
Mörk er sú upphæð fés sem þarf að vera inni á þínum reikning til geta opnað stöðu. Mörk eru reiknuð miðað við núverandi verð á grungjaldmiðlinum á móti USD, stærð (magni) stöðunnar og skuldsetningunni sem notuð fyrir þinn viðskiptareikning.
Þóknanir eru þau gjöld sem fjárfestingarmiðlun innheimtir af miðlara fyrir að framkvæma viðskipti fyrir hans hönd. Stig skuldbindinga eru mismunandi eftir miðlunum og fer einnig eftir eigninni sem miðlað er með og þeirri þjónustu sem miðlunin veitir.
Miðlanir sem sjá aðeins um framkvæmdina, það er þær miðlanir sem sjá ekki um hverskyns fjárfestingarráðgjöf og gefa miðlurum algjörlega frjálsar hendur um hvernig þeir versla á mörkuðum, hafa yfirleitt lægri þóknanir.
Þó miðlun með afleiðusamningar (CFD) sé form af afleiddum viðskiptum sem gerir miðlurum kleift að spá fyrir um hækkun eða lækkun verðs á hraðvirkum alþjóðlegum fjármálamörkuðum, þarf að greiða þóknun fyrir að miðla með bréfin.
CFD viðskipti á öðrum mörkuðum bera engar þóknanir en auka verðbil markaðsverðsins fyrir ákveðinn gerning.
City Index er gegnsætt og opið um allan sinn viðskiptakostnað. Það býður bæði föst og breytileg verðbil miðað við valinn markað.
Föst verðbil breytast ekki eftir markaðsaðstæðum og eru í boði annaðhvort yfir skilgreint tímabil á dag, eða yfir alla opnunartíma viðskipta.
Breytilega verðbil flökta yfir daginn mið við greiðslumátt og óstöðugleika markaðar. Greiða verður fjármögnunargjöld til að halda stöðu opinni yfir nótt en það á ekki við um framvirka samninga.
Daglegt fjármögnunargjald er lagt á reikning hvern dag sem stöðu er haldið opinni, einnig um helgar.
Það er engin fjármögnun innheimt fyrir framvirka samninga og engar þóknanir eru innheimtar þegar þú veðjar á verðbil hjá City Index, þetta á einnig við um CFD miðlun, fyrir utan CFD fyrir hlutabréf.
City Index innheimtir sanngjarna taxta fyrir breytingar aftur í grunngjaldmiðil og þessir taxtar eru tilkynntir á sölukvittun og yfirlitum viðskiptavinar. City Index innheimtir ekki gjöld fyrir gögn.
Lánakostnaður hlýst af þegar þú skortselur stöðu CFD fyrir hlutabréf, og þegar undirliggjandi eignin er lánuð til að selja og skila seinna.
Gjöld fyrir einstaklingsbundinn aðskilinn samsöfnunarreikning eru 13.000 £ opnunargjald, plús viðhalds reiknings og færslugjöld.
Fyrir fyrirtækjaeiningar er það 200.000 £ gjald fyrir að opna reikning, plús viðhald reiknings og færslugjöld.
Þegar engin virkni hefur átt sér stað á reikningnum yfir 12 mánaða tímabil eða meira, er hann metinn óvirkur og mánaðarlegt 12 £ óvirknigjald er innheimt.
SKULDSETNING
Ferlið sem leyfir miðlara að hafa miklu meiri áhrif á markaði en sú upphæð sem hann eða hún lagði inn til að opna viðskipti, er kallað skuldsetning. Slíkar skuldsetningar auka mögulegan gróða miðlarans – en auka líka að sjálfsögðu hugsanlegt tap.
Upphæð skuldsetningar er sett fram sem hlutfall, til dæmis 50:1, 100:1, eða 500:1. Ef gert er ráð fyrir að miðlari eigi 1.000 $ inni á hans eða hennar viðskiptareikningi og er að miðla með miðastærðir 500.000 USD/JPY, mun sú skuldsetning jafnast á við 500:1.
City Index býður upp á mismunandi upphæðir skuldsetningar miðað við vöruna, en hámark skuldsetningar í Bretlandi og Ástralíu er 1:200 og í Singapúr 1:50.
Lágmark skuldsetningar og mörk fyrir City Index fara einnig svolítið eftir markaðnum og skrifstofunni sem sér um reikninginn.
Einstaklingsmiðlarar með reikninga frá Bretlandi hafa 5 prósent lágmarksmörk og 20:1 skuldsetningu fyrir aðalvísitölur, 3,33 prósent og 30:1 fyrir aðal Forex, 5 prósent og 20:1 fyrir vörur, 20 prósent og 5:1 fyrir hlutabréf og 50 prósent og 2:1 fyrir rafmyntir.
Ástralskir reikningar fá 0,5 prósent og 200:1, 0,5 prósent og 200:1, 0,5 prósent og 200:1, 5 prósent og 20:1 og 25 prósent og 4:1, hver um sig.
Fyrir Singapúr er það 5 prósent og 20:1, 2 prósent og 50:1, 20 prósent og 5:1, 10 prósent og 10:1, og 25 prósent og 4:1.
BÓNUSAR
Forex miðlanir hneigjast til að laða að nýja miðlara með boðum um aðlaðandi innlagnarbónusa. Þetta getur verið hentugs, en það er mikilvægt að koma auga á hvað almennilegur bónus er.
Slíkur bónus er leið til umbuna miðlurum fyrir að velja ákveðna miðlun, því að um leið og reikningur er opnaður, mun miðlarinn hafa sama kostnað og hver annar.
Bónusinn er aðeins verðlaun fyrir val miðlarans sem gefur sumt af þessum kostnaði aftur til baka til miðlarans, um leið og hann hefur sannað sig sem virkur miðlari.
Það sem meira er, síðan 1. ágúst 2018 hefur Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) sett upp vernd fyrir miðlara fyrir markaðssetningu, dreifingu og sölu á CFD til einstaklingsmiðlara.
Þetta hindrar miðlanir í að beint eða óbeint bjóða smásölukúnna greiðslu, peninga eða ópeningaleg fríðindi í tengslum við markaðssetningu, dreifingu eða sölu á CFD, annarri en hagnaði af hverskyns CFD sem boðið er upp á.
Í samræmi við þessar takmarkanir á reglugerðum, býður City Index ekki upp á neina bónusa eða kynningar. Það eru hinsvegar einhverjar vísbendingar um 1.000 £ skiptibónus fyrir atvinnumiðlara.
Þú gætir einnig haft áhuga á BlackBull Markets Skoðun
VIÐSKIPTAVETTVANGAR, HUGBÚNAÐUR OG EIGINLEIKAR HANS
Forex miðlunarhugbúnaðurinn sem miðlunarfyrirtæki veitir sínum viðskiptavinum er kallaður vettvangur og er notaður til að framkvæma viðskipti þeirra.
Vettvangur getur verið fjölnota, sem þýðir að hann leyfir viðskiptavinum ekki aðeins að versla með forex, heldur einnig aðra eignaflokka á borð við CFD fyrir hlutabréf, hlutabréfavísitölur, verðmæta málma, og rafmyntir.
Ákvörðunin um hvaða vettvang ætti að velja mun fara eftir því hvað viðskiptavinurinn vill versla með, það mun því einnig vera eitt af því sem þarf að skoða þegar miðlun er valin.
Miðlarar geta valið um þrjá viðskiptavettvanga á netinu og miðlunaröpp í farsíma í boði City Index.
Þessir vefvettvangar eru eftirfarandi:
- Web Trader – Viðskiptavettvangur City Index’s byggður á HTML
- Advantage Web – Eldri viðskiptavettvangur City Index
- MetaTrader 4 – Viðskiptavettvangur þriðja aðila, sérhæfður fyrir forex miðlun.
City Index býður Advantage miðlunaröppin fyrir iOS og Android snjallsíma og spjaldtölvur og leyfir öruggan sólarhringsaðgang að reikningi, streymandi verð og kort í beinni, fréttir frá Reuters í beinni og efnahagslegt dagatal.
City Index býður líka upp á niðurhalanlega vettvanga með þróuðum eiginleikum, hannaða fyrir reynda miðlara, eins og AT Pro, vettvang fyrir borðtölvur með öflugum greiningartólum.
Allir þessir bjóða upp á fjölbreytt miðlunarsniðmát, þróaða kortapakka og meiri hraða og afköst.
MARKAÐIR, VÖRUR OG GERNINGAR
Flestar miðlanir bjóða upp á einhver af eftirfarandi markaðsgerningum fyrir viðskipti:
Gjaldeyrisviðskipti:
Forex miðlun, einnig þekkt sem FX miðlun, snýst um gjaldeyrisskiptamarkaðinn þar sem einstaklingar, fyrirtæki og fjármálastofnanir skiptast á gjaldmiðlum á fljótandi gengi.
Vörur:
Eins og með gjaldeyrisskiptamarkaði, bjóða vörumarkaðir upp á öðruvísi fjárfestingartækifæri fyrir miðlara. Fjárfesting í samningsbundum seljanlegum vörum er áreiðanleg leið til að draga úr áhættu á tímum verðbólgu eða efnahagsóvissu.
Vísitölur:
Eignir eða hlutabréfavísitölur eru alvöru vísitölur hlutabréfamarkaðsins sem mæla verðgildi ákveðins hluta af hlutabréfamarkaði. Þær geta staðið fyrir mengi stærstu fyrirtækja eins lands eða staðið fyrir einn ákveðinn hlutabréfamarkað.
Verðmætir málmar:
Viðskipti með gull og aðra verðmætir málma fela í sér hrávörur sem eru samningsbundnar, seljanlegar vörur.
Orka:
Óstöðugleiki orkuverðs vegna ástands í stjórnmálum eða umhverfi, framboðs og eftirspurnar, öfga í veðurfari og hnattræns hagvaxtar er dæmigerður eiginleiki þessarar vöru, sem gerir hana að öðrum vinsælum valkosti til að versla með.
Rafmyntir:
Bitcoin (BTC) er rafmynt með mestu markaðsfjármögnuna og verðgildi síðan hún var stofnuð árið 2008. Hún ræður um 50% af öllu markaðsvirði rafmynta.
Litecoin (LTC) er svipuð Bitcoin en hefur öðruvísi kjör og sveigjanleika. Litecoin er önnur mjög vinsæl rafmynt og LTCUSD er afleggjari frá Bitcoin (BTCUSD), afrituð frá kóða Bitcoin og með smávægilegum breytingum, sett af stað sem nýtt verkefni.
Ripple (RPL) er vinsælt meðal stórra banka með Ripple netkerfinu og næstu kynslóðar greiðsluuppgjörskerfi í rauntíma. Það leyfir tafarlausar millifærslur sjóða yfir landamæri með mjög lágum tilkostnaði.
Ethereum (ETH) er næststærsta rafmyntin á eftir Bitcoin og leyfir hönnuðum að búa til snjallsamninga á vettvangi.
Bitcoin Cash (BCH) var búin til úr Bitcoin „hard fork“ aðgerð árið 2017 og er ný útgáfa af bitakeðjunni með öðruvísi reglum.
City Index veitir miðlurum aðgang að Veðmálum um verðbil og CFD miðlun yfir 12.000 markaði, þar á meðal vísitölur, hlutabréf, FX rafmyntir og vörur.
City Index býður CFD miðlun fyrir 17 vísitölur í Asíu, Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu, CFD miðlun fyrir meira en 4.500 hluti af almennum fyrirtækjum sem vinsælt er að versla með um allan heim
Þessi miðlun býður einnig aðgang að forex mörkuðum á yfir 65 alþjóðlegum FX pörum, þar á meðal aðal, minni, og sum framandi þar sem miðlarar velja á milli USD, GBP, EUR og krosspörum.
City Index býður einnig rafmyntirnar Bitcoin, Ethereum, Litecoin og Ripple og CFD samninga fyrir málma og aðrar vörur.
ÖRYGGI OG REGLUGERÐIR
Eitt af því fyrsta sem hugsanlegur miðlari verður að finna út, er hvort að miðlun eins og City Index sé örugg til að stunda viðskipti við. Einn af slíkum mælikvörðum á öryggi miðlunar er að finna út hvaða eftirlitsyfirvöld eru varðhundar gjörða hennar.
City Index er undir eftirliti aðila í hæsta gæðaflokki á borð við Financial Conduct Authority (FCA), Australian Securities and Investments Commission (ASIC) og Monetary Authority of Singapore (MAS).
Hægt er að líta á City Index sem öruggt því það á langan feril að baki sem nær yfir 35 ár og er undir eftirliti nokkurra af virtustu fjármálayfirvöldunum.
Sú staðreynd að móðurfélag þess er skráð í kauphöll er annar plús þar sem City Index gefur reglulega út gegnsæja ársreikninga.
Öryggi City Index er ennfremur staðfest fyrir miðlara með því hvernig þau eru varin ef eitthvað kemur upp á.
City Index rekur meira en eitt dótturfyrirtæki og hverskyns upphæð fjárfestaverndar sem þú getur fengið mun fara eftir landi dótturfélagsins sem þú skráðir þig hjá.
ÞJÓNUSTUVER
Væntanlegir miðlarar verða að vera vissir um að miðlunin sem þeir velja bjóði nauðsynlegan stuðning og hjálp hvenær sem þeir þurfa á henni að halda.
Hægt er að ná í þjónustu City Index við viðskiptavini með tölvupósti, síma, og lifandi spjalli, tvennt síðastnefnda á við ef þú þarf mjög skjót og mikilvæg svör.
Þjónustuver City Index er ekki tiltækt 24/7, en á milli sunnudaga 17:00 EST og föstudaga 17:00 EST.
RANNSÓKNIR
Væntanlegir miðlarar ættu alltaf að rannsaka spámiðlun eins mikið og hægt er, áður en þeir byrja að nota hana.
Að miðla af öryggi og með árangri byggist að miklu leyti á þekkingu og skilningi á mörkuðum, því eru þau tækifæri til rannsókna sem miðlanir bjóða mikilvægur hluti af eiginleikum þeirra þegar rétta fyrirtækið til að stunda viðskipti með er valið.
Miðlarar City Index geta nýtt sér góð tól til línuritagerðar, viðskiptahugmyndum, gæðafréttum, þó að þær gæti skort grunngögn.
MENNTUN OG ÞJÁLFUN
Áður en verslun er hafin, ættu væntanlegir viðskiptavinir City Index að nýta sér allar mögulegar upplýsingar og hæfileika í miðlun sem þarf til að vegna vel í heimi forex og vöruviðskipta.
City Index býður upp á marga leiðir til þjálfuna, frá prufureikningi til fræðslumyndbanda, námskeiða á netinu og fræðigreinar fyrir byrjendur og reynslumeiri miðlara.
Þú getur lært að stunda viðskipti með Þjálfunarskóla City Index og hefur aðgang að eftirfarandi tegundum fræðsluefnis:
- Námskeið um hvernig afleiðusamningar virka
- Handbækur um tæknilega greiningu og grunngreiningu
- Handbækur um viðskiptaáætlanir
- Fréttir og greiningar sérfræðinga
- Frí vefnámskeið
- Hagnaðarskýrsla
- Fjárhagslegt dagatal
Viðskiptavinir City Index geti einnig tekið þátt í sérstakri miðlunarþróunarverkefni með viðskiptaáætlananámskeið sem skiptist í þrjá aðalhluta.
- Fyrsti hlutinn (Demystifying Forex) er tileinkað því að læra lykilhugtök í forex gjaldeyrisviðskiptum
- Annar hlutinn (Lærðu að stunda viðskipti námskeið) er tileinkað undirstöðuatriðum grunn- og tæknilegrar greiningar.
- Síðasti hlutinn, (Miðlaðu eins og fagmaður) er tileinkaður þróaðri hugtökum og viðskiptaáætlunum
SAMANTEKT
City Index er þekkt CFD og forex miðlunarfyrirtæki sem eru undir eftirliti fjármálayfirvalda í hæsta gæðaflokki eins og UK FCA. Það er þekkt fyrir sín lágu gjöld fyrir forex og CFD fyrir hlutabréfavísitölur og hágæða rannsóknartól.
Þó að gjöld City Index fyrir CFD fyrir hlutabréf séu frekar há, er staðreyndin sú að það eru engin úttektargjöld og óvirknigjöld fara ekki að stað fyrr en eftir eitt ár, miðlurum er frjálst að skoða það.
ALGENGAR SPURNINGAR
VIÐSKIPTAUMHVERFI
Hversu marga fjárgerninga get ég verslað með hjá City Index?
Þú getur miðlað með marga mismunandi gerninga hjá City Index, sem innifela eftirfarandi:
- Forex gjaldmiðla 80+
- Rafmyntir: 5+ Bitcoin, Litecoin, Ethereum
- CFD: 515+ Gull, silfur, aðrir verðmætir málmar, hlutabréf vísitölur hlutabréfa, skuldabréf, olía, aðrar vörur.
Hvaða vettvanga styður City Index?
City Index býður upp á eftirfarandi vinsæla viðskiptavettvanga:
- MetaTrader4
- Web Trader – Viðskiptavettvangur City Index’s byggður á HTML,
- Advantage Web – Eldri viðskiptavettvangur City Index,
Býður City Index upp á skuldsetningu?
Já, City Index býður upp á hámark skuldsetningar 1:200 fyrir atvinnumiðlara og 1:30 fyrir einstaklingsmiðlara, samkvæmt ESMA reglugerðum
Hvaða verðbilum get ég átt von á hjá City Index?
City Index býður breytileg verðbil á sínum ýmsu reikningum. Ef ítaratriði á vefsíðunni eru ekki skiljanleg, er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá þjónustuverinu.
Innheimtir City Index þóknanir?
Frekari upplýsingar um þóknanir má finna hjá þjónustu stuðningsteymisins.
Er City Index undir eftirliti?
Já, City Index er undir eftirliti Financial Conduct Authority (FCA), Australian Securities and Investments Commission (ASIC), Monetary Authority of Singapore (MAS).
Er mælt með City Index sem gjaldeyrismiðlun fyrir sérfræðinga og byrjendur?
City Index býður upp á gott viðskiptaumhverfi fyrir allar tegundir fjárfesta.
Hver er heildareinkunn af 10 fyrir City Index?
8/10
REIKNINGAR
Hver er munurinn á prufu og virkum viðskiptareikningi?
Miðlunarfyrirtæki bjóða upp prufureikning sem er fjármagnaður með sýndarpeningum og gerir væntanlegum viðskiptavinum kleift að prófa sig áfram með viðskiptavettvang fyrirtækisins og eiginleika hans, áður en alvöru reikningur er settur upp sem er fjármagnaður með alvöru fé kúnnans.
Býður City Index upp á prufureikning?
Já
Get ég breytt mínum prufureikningi í virkan viðskiptareikning hjá City Index?
Ekki ljóst miðað við upplýsingarnar á heimasíðu fyrirtækisins.
Upp á hvaða virku viðskiptareikninga býður City Index?
- Hefðbundinn City Index reikning
- VIP reikning aðeins í gegnum boð
Hvaða innlagnargjaldmiðlar eru í boði fyrir virkan viðskiptareikning?
USD og fleiri
INNLAGNIR OG ÚTTEKTIR
Hver er lágmarksinnlögn hjá City Index?
Engin lágmarksinnlögn ef fjármagnað er í gegnum bankamillifærslu og PayPal.
Til að leggja inn með debet/kreditkorti, er lágmarksinnlögn: 100 $.
Hvernig framkvæmir þú innlögn og úttekt hjá City Index?
City Index býður upp á eftirfarandi innlagnar- og úttektarleiðir:
- Bankamillifærsla
- Kreditkort
- Debetkort
- PayPal
Yfirleitt þarf að nota sömu aðferð og var notuð til að leggja inn á reikning til að að taka út fé, sem verður aðeins lagt inn á reikninga með sama nafni og viðskiptareikningurinn.
Innheimtir City Index þóknanir?
Já, upphæðirnar er að finna á heimasíðu fyrirtækisins.
Hvað tekur úttekt langan tíma?
Úttektir með ákveðnum leiðum gætu verið framkvæmdar innan eins dag en miðað við bankaþjónustur gæti það tekið nokkra daga fyrir peningana að verða tiltæka.
FYRIRVARI
City Index varar alla væntanlega miðlara við því að viðskipti með Forex og CFD fela alltaf í sér mikla áhættu og gætu ekki hentað öllum fjárfestum.
Áður en viðskiptavinir ákveða að miðla með þær vörur sem City Index býður upp á, er þeim ráðlagt að íhuga vandlega fjárfestingarmarkmið sín, fjárhagsstöðu, þarfir og eigin reynslu áður en þeir fjárfesta með peningum sem þeir hafa ekki efni á að tapa.
Þegar miðlarar nota lánareikninga City Index, ættu þeir að viðhalda nægilegu svigrúmi til að viðhalda stöðum sínum, þar sem miðlun með Forex/CFD og valrétti á lánsfé felur í sér mikla áhættu.
Að nota hærri skuldsetningu en nauðsynlegt er getur unnið á móti miðlaranum sem og með honum. Það er alltaf möguleiki á að þú gætir tapað hluta af eða allri þinni upphaflegu fjárfestingu.
Þó City Index geri vanalega allt sem hægt er til að klára viðskipti á því verði sem beðið var um, minnkar miðlun á netinu ekki endilega áhættuna sem tengist gjaldmiðlaviðskiptum, því eru tilboð og viðskipti vanalega háð þeim skilmálum og skilyrðum sem finna má í Samningnum við viðskiptavininn.
Nýleg rannsókn okkar sýnir fram á að væntanlegir miðlarar ættu fyrst að kynna sér allar þær áhættur sem tengjast miðlun með lánsfé og fá ráð frá sjálfstæðum fjármálaráðgjafa ef þeir eru í einhverjum vafa.
Þú gætir einnig haft áhuga á BDSWISS Skoðun